Bónus

Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss og stjórnarformaður Haga hf., segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að ekkert sé óeðlilegt við það, að bankinn vinni með núverandi eigendum, sem þekkja félagið og hafa stofnað til góðra viðskiptasambanda í gegnum áratugi, enda um verðmætar eignir að ræða.

Auðvitað er ekkert óeðlilegt við að banki vinni með eigendum að ákveðnum fyrirtækjum við endurskipulagningu þeirra.  Í þessu tilfelli er Kaupþing að vinna með eigendum Haga, sem á m.a. Bónus og fleiri verslanir.  Það er hagur bankans að núverandi eigendur stýri þessum fyrirtækjum áfram í gegnum erfiðleikanna.  Bæði hafa þeir reynsluna og góð viðskiptasambönd.  Þessi leið mun vonandi tryggja að Kaupþing fái sín lán endurgreidd að fullu.  Aftur á móti er þetta ekki sú leið sem Sjálfstæðismenn vilja fara, þeir vilja skipta þessu fyrirtæki upp og færa það til nýrra eigenda, enda er hatur þeirra á þessu fyrirtæki ótrúlegt.


mbl.is Jóhannes Jónsson: Ekkert óeðlilegt við samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég er ekki viss um að Sjálfstæðismenn vilji skipta þessum fyrirtækjum upp bara til að færa til nýrra eigenda heldur fyrst og fremst til að færa innflutninginn til heildsalanna aftur.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 4.11.2009 kl. 12:40

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað værum við bættari með það?

Jakob Falur Kristinsson, 6.11.2009 kl. 09:53

3 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Nei alls engu bættari, bara að segja að það sé ekki fyrir aðra en sjálfa sig (heildsalanna) sem Sjálfstæðismenn vilja Bónus feigann.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 6.11.2009 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband