Nýr formaður

Friðrik Ó Friðriksson tók við sæti formanns Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) á stjórnarfundi samtakanna í gærkvöldi. Þórður Björn Sigurðsson lét af formennskunni en hann hefur tekið að sér starf aðstoðarmanns formanns Hreyfingarinnar og í ljósi samþykkta HH um hlutleysi samtakanna gagnvart stjórnmálaflokkum mæti hann stöðu sína svo að hann yrði að víkja úr stjórn HH til að sinna hinu nýja starfi.

Það er auðvitað miklu virðulegra starf að vera aðstoðarmaður formanns "Hreyfingarinnar", en að berjast fyrir heimilin í landinu.  Ég óska hinum nýja formanni til hamingju og velfarnaðar í starfi.


mbl.is Nýr formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Jakob, menn verða að fá salt í grautinn.  Ekki lifum við á loftinu einu.

Þetta sýnir aftur að við hjá HH erum sönn samþykktum okkar og þar er ekki verið að fara í kringum hlutina með blekkingu.

Marinó G. Njálsson, 6.11.2009 kl. 12:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er þér algerlega sammála, Marinó, en því miður hafa stjórnvöld ekki vit á að vinna meira með þessum samtökum.

Jakob Falur Kristinsson, 7.11.2009 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband