Ný verslun

„Við náum ekki að vera ódýrastir í öllum vöruflokkum, þar sem við erum bara með eina búð, en við gerum út á að vera með góða vöru á góðu verði," segir Jón Gerald Sullenberger, framkvæmdastjóri Kosts, í upphafi samtals á miðju verslunargólfinu í vikunni, þegar unnið var hörðum höndum við uppsetningu á innréttingum og byrjað að raða upp vörum.

Þetta mun verða þungur róður hjá Jóni að reka þessa verslun.  Því margir munu reyna að leggja steina í götu hans með þessa verslun.  En vonandi gengur þetta vel hjá honum, því öll samkeppni á þessum markaði er af hinu góða.


mbl.is „Neytendur okkar yfirmenn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jakob.

Ég hjó líka eftir þessum ummælum hans. Hann á heiður skilið fyri baráttuna að fara sínu fram gegn .....................! ?

Kveðja

Þórarinn Þ Gíslason 12.11.2009 kl. 10:12

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já ég er þér sammála Þórarinn.

Jakob Falur Kristinsson, 12.11.2009 kl. 10:16

3 Smámynd: Egill Þorfinnsson

Við ættum sem flest að standa þétt við bakið á Jóni í þessu lofsverða framtaki hans. Þó hann geti ekki verið ódýrastur í öllum verðflokkum þá mun ég hefja viðskipti við hans verslun og sjá svo hvert framhaldið verður.

Egill Þorfinnsson, 12.11.2009 kl. 11:01

4 identicon

Haldið þið í alvörunni að hann sé í einhverri góðgerðarstarfsemi? Hvað er hann aftur að taka sér í laun á mánuði og hefur núna í marga mánuði? 800.000 kall? Ég man það ekki en las e-s staðar fyrir þó nokkru síðan (týpísk svona ómerkileg net-heimild hjá mér).

Bragi Þór Valsson 12.11.2009 kl. 14:05

5 Smámynd: Egill Þorfinnsson

Nei að sjálfsögðu ekki, það er bara mannlegt eðli að vilja að græða.

Mér er alveg sama og mér kemur það reyndar ekkert við hvað Jón hefur í laun á mánuði á meðan að ég fæ vöruna á hagstæðu verði.

Egill Þorfinnsson, 12.11.2009 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband