Sykurskattur

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, gagnrýnir harðlega svokallaðan sykurskatt í fréttatilkynningu sem hann hefur sent frá sér.

Ég held að Jón geti verið alveg rólegur, því það er mjög erfitt að setja þennan skatt á og enn erfiðara að fylgja honum eftir.  Vegna þess að mjög umdeilt er hvaða vörur innihalda sykurefni og hverjar ekki.


mbl.is Gagnrýnir sykurskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sykur efni... ja, það er kolvetni.  Vel flest matvæli held ég innihaldi slíkt.  Ég man ekki eftir lífveru í fljótheitum sem ekki inniheldur smá svoleiðis, og plöntur oftast meira held ég en dýr.

Og þó...

Jafnvel þó þeir meini bara viðbættan sykur, þá kemur hann á ýmsu formi.  Hunang, molassi, strásykur... og meira.

Það er sama hvernig maður snýr þessu, þetta verður dýrt kerfi og hefur einungis slæm áhrif.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.11.2009 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband