Giftist látnum manni

Tuttugu og sex ára frönsk kona fékk að giftast sínum heittelskaða í smábænum Dommary-Baroncourt í Austur-Frakklandi á laugardag. Hið óvenjulega við það, er að maðurinn er löngu látinn.

Þetta getur varla verið löglegt hjónaband, enda er spurning hvernig látinn maður getur staðfest að hann vilji giftast þessari konu.  Ég hélt að ekki væri hægt að stofna til hjónabands, nema með samþykki beggja aðila. En kannski eru aðrar venjur og lög í Frakklandi en víða annar staðar.


mbl.is Giftist löngu látnum unnusta sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris Hauksdóttir

Ég held að ákvörðun yfirvaldsins í Frakklandi hafi verið byggð upp á þeirri staðreynd að þau höfðu saman sátt um leyfi til að gifta sig - það að svo óheppilega hafi orðið að maðurinn lést 2 dögum eftir umsóknina er hræðilegt, en ég efast um að hann hafi skipt um skoðun varðandi konuna sína á þessum 2 dögum :) En auðvitað er þetta skrýtið ;)

Íris Hauksdóttir, 16.11.2009 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband