Verðmunur

Mikill verðmunur var á bökunarvörum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum á landinu á mánudag. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í rúmlega helmingi tilfella, 26 vörum af þeim 49 vörum sem kannaðar voru reyndust ódýrastar í Bónus.

Bónus sker sig algerlega úr í þessari könnun og er það kannski ástæða þess að margir vilja láta loka þeim verslunum.


mbl.is Mikill verðmunur á bökunarvöru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Einarsson

Það er augljóst að blásið er núna í herlúðra vegna aukinnar samkeppni á þessum markaði.  Það eru samt margir sem átta sig á þessu og hafa stéymt í verslun nýjasta samkeppnisaðilans.  Sú verslun virðist fara vel af stað, góð verð að meðaltali og spennandi vörur.  Gott viðmót er það sem flestir eru sammála um að haf mætt. 

Illa er í þessari "verðkönnun" vegið að nýliðanum Kosti.  Alþjóð fylgdist spennt með því þegar nokkurra klullustunda bið varð á opnun verslunarinnar.  Ástæða: snemma á laugardagsmorgninum bilaða tölvukerfi verslunarinnar þannig að verðmerkingar fóru í handaskolum.  Starfsfólk þeirra hefur unnið lengri vinnudag heldur en venjulegt fólk myndi sætta sig við til þess að laga þessi mál.

Betra væri ef verðlagseftirlit ASÍ hefði aflað sér upplýsinga um þessi vandamál og haft fyrirvara á í fréttatilkynningu sinni í stað þess að  reyna að rýra trúverðugleika kostsmanna að ósekju með óheppilegu orðalagi sínu.

Fyrir tuttugu árum var það nákvæmlega sama uppi á teningnum þegar  fyrsta bónussverslunin, "frestun opnunar vegna vandamála í tölvukerfi".

Hilmar Einarsson, 19.11.2009 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband