Vill stríð

Forseti Aserbaídjan, Ilham Aliyev, hefur varað nágranna sína í Armeníu við því að hann sé tilbúinn til að beita valdi til þess að setja niður deilur um héraðið Nagorno Karabak.

Hafa þessir furðufuglar sem stjórna þessum löndum aldrei heyrt um friðarviðræður og samninga.  Ef þær ætla að leysa sínar deilur með stríði er allri skynsemi fleygt á brott og í staðinn tekið upp hatur, sem eitra mun huga íbúa þessara ríkja.  En það verður stríð munu mörg þúsund manns láta lífið, en það er eins og það atriði skipti ekki máli.  Heldur stríð til að drepa sem flesta, sem er auðvitað ákveðið markmið út af fyrir sig.  En málið er að á þessu stríði munu allir tapa nema vopnaframleiðendur, sem örugglega kynda undir.


mbl.is Aserar tilbúnir í stríð við Armena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef líka lengi haldið því fram að það sé enginn sigurvegari í stríði. Held meira að segja að það sé ódýrara að tapa landsvæði en að vinna það með stríðsátökum sem alltaf eru óhemjudýr, svo ekki sé talað um allann þann skaða sem ekki er hægt að meta til fjár.

Húnbogi Valsson 22.11.2009 kl. 12:10

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að aldrei er neinn sigurvegari í stríði, nema vopnaframleiðendur.

Jakob Falur Kristinsson, 23.11.2009 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband