Loftlagsmálin

Æðstu forystumenn meira en 60 ríkja hafa staðfest komu sína á loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. Þetta hefur styrkt vonir manna um að mikilvægur árangur náist á fundinum, að sögn fréttavefjar BBC.

Þótt allir þessir forustumenn yfir 60 þjóða hafi staðfest komu sína á þennan fund.  Verður að varast að ætla sér að einhverjar líkur séu til að árangur náist, því þau lönd sem mest menga andrúmsloftið eru andvíg öllum takmörkunum á því.  Mörg þessara landa hafa ekki enn staðfest svokallaðan Kyoto-sáttmálan frá 1997 og því ekki líklegt að þau vilji gera nýjan sáttmála nú í ljósi fyrri reynslu.  Það eru ótrúlega margir sem trúa því að núverandi ástand orsaki hlýnun jarðar og miðað við núverandi ástand muni t.d. hiti á Íslandi verðasvipaður og er víða í Norður Evrópu.  En það mun aldrei ske, heldur munu hafstraumar breytast og talið er að áður en kemur að hlýnun jarðar komi ísöld, sem gæti varið í nokkur hundruð ár og þar með eytt miklu af lífi á jörðinni.  losun efna, sem skapa gróðurhúsaáhrif, skiptir engu fyrir þessa þróun.  Þetta hefur skeð með nokkuð reglulegu millibili gegnum margar aldir og því verður ekki breytt með einhverri samþykkt í Kaupmannahöfn.


mbl.is Meira en 60 þjóðaleiðtogar mæta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband