Hagræðing

Með hagræðingaraðgerðum Landspítala hefur tekist að færa þjónustu frá dýrara formi til ódýrara forms. Þetta kemur fram í föstudagspistli Björns Zoëga forstjóra spítalans í dag. Í pistlinum kemur einnig fram að meðallaun allra stétta á spítalanum hafi lækkað, nema þeirra allralægst launuðu. Þannig hafi allir starfsmenn tekið á sig hluta af hagræðingu spítalans.

Flest er nú hægt að kalla hagræðingu.  Hvaða feluleikur er þetta?  Af hverju segir forstjóri spítalans ekki einfaldlega að rekstrarkostnaður spítalans hafi verið lækkaður með því að lækka laun starfsmanna. 

Það kallast launalækkun en ekki hagræðing.


mbl.is Allir starfsmenn hafa tekið á sig hagræðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jakob.

Þörf ábending í góðum pistli.  Af hverju geta menn ekki sagt satt???

Var lygin ekki svona 2007 eitthvað????

En það erum við og okkar líkar sem eiga að blæða fyrir ICEsave og IFM.  Ekki nema menn eins og við höldum ótrauðir að rífa kjaft.

Og í framhaldi á því að styðja byltingaröfl, til dæmis öfl skynseminnar.

En takk fyrir alla þína mörgu og góðu pistla, sem gefa mönnum eins og mér innblástur.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.11.2009 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband