Skattahækkanir

Áætlað er að beinn kostnaður ríkissjóðs við leggja á nýja skatta verði yfir 100 milljónir króna. Kostnaðurinn felst í breytingum á tölvukerfi, auglýsingum og kynningarefni og auknu skatteftirliti vegna flóknara skattkerfis.

Ætli endirinn verði ekki sá að hækkun skatta fari að mestu leiti í kostnað við breytingarnar og skili þar af leiðandi litlum tekjum í ríkissjóð.  Því flóknar sem skattkerfið er verður það kostnaðarsamara og eykur á líkum á undanskotum frá því að greiða skattinn.


mbl.is Yfir 100 milljónir í kostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hugsa að ENDIRINN verði ekki sá kostnaðurinn verði MEIRI en tekjurnar, það er þegar komið fram.  Það þekkja það allir sem hafa komið nálægt rekstri að KOSTNAÐURINN kemur yfirleitt á undan TEKJUNUM og er oftast MEIRI en áætlanir gera ráð fyrir en þessi einfaldi sannleikur var ekki kenndur í jarðfræðinni fyrir 25 árum

Jóhann Elíasson, 29.11.2009 kl. 11:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þessu er ég algerlega sammála Jóhann.

Jakob Falur Kristinsson, 29.11.2009 kl. 12:08

3 Smámynd: Sigurður Helgason

En hver fær tekjurnar ???????

Er það ekki vinnandi fólk, skrítinn umræða,

En það er ekkert að marka mig greindarvísitalan niður úr öllu það er kannski þyssvegna sem ég kaus ekki rétt, fyrir hrun.

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 15:35

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það fær enginn tekjurnar, því þær verða engar, en kostnaðurinn verður auðvitað tekinn af vinnandi fólki.

Jakob Falur Kristinsson, 30.11.2009 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband