Króatar

Króatar gera ráð fyrir því að greiða um 550 milljón evrur, eða eitt hundrað milljarða króna, til að fullnægja stöðlum Evrópusambandsins svo það fái inngöngu. Á fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir 273 milljón evra kostnaði og 277 milljón evra árið 2011.

Hann er dýr aðgöngumiðinn að þessum klúbb, en þeir ætla að láta sig hafa það í Króatíu.  Enda slæmu vanir frá forni tíð og lengi getur vont versnað.  Miðað við þetta er engar líkur á að Ísland hafi efni á að fá þarna aðild á næstu árum.


mbl.is Hundrað milljarða kostnaður til að þóknast ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já það er kostnaðarsamt þetta GÆLUVERKEFNI Landráðafylkingarinnar.  Þegar kemur að þessari vitleysu er ekki að sjá að það skorti fjármagn og svo fannst mér það svolítið skrýtið að Álfheiður Ingadóttir ætlar að efla neyðarmóttöku vegna nauðgana mitt í öllum niðurskurðinum.  Það er bara einfaldlega ekki í lagi með þetta lið.  Á kannski að fjármagna þetta ALLT með nýjum sköttum?????

Jóhann Elíasson, 29.11.2009 kl. 12:53

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Örugglega á að framkvæma þetta með nýjum sköttum, því þessari ríkisstjórn kemur ekkert annað í hug en að hækka skatta.

Jakob Falur Kristinsson, 30.11.2009 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband