Þingsköp

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur tilefni til þess að breyta þingskaparlögum í ljósi þess hvernig þingstörfin hafa gengið fyrir sig að undanförnu. Ólína tók til máls í umræðum um störf þingsins í morgun, og sagði þá sorglega atburðarás hafa átt sér stað síðustu daga.

Þetta er alveg rétt hjá Ólínu, því þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ekki þá gáfur til að vera að  sinna sínum störfum á Alþingi á sómasamlegan hátt verður að breyta þingsköpum til að Þingmenn fari að vinna sína vinnu og hætti þessum sandkassaleik, sem hefur staðið undanfarna daga.  En auðvitað þurfti Illugi Gunnarsson að gera athugasemd við þetta og vill endilega fá meiri umræður um hvort þingmenn séu sammála sjálfum sér.  En öll umræða undan farið hefur gengið út á það atriði.


mbl.is Ólína vill breyta þingsköpum til að hindra málþóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þarf að ræða þetta frekar

Jón Snæbjörnsson, 4.12.2009 kl. 12:58

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Allt sem er nógu vitlaust vill Illugi ræða frekar.

Jakob Falur Kristinsson, 4.12.2009 kl. 13:02

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Svo virðist sem tilgangur þessa málþófs stjórnarandstöðunnar sé að grafa undan ríkisstjórninni. Völdin virðast vera það sem einkum Framsóknarflokki og SJÁLFSTÆÐISFLOKKI er mest í mun. Áróðurinn verður sennilega sjaldan jafn harkalegur og einmitt nú þegar þessir flokkar sem eru með allt niðrum sig, reyna að bæta stöðu sína.

Það er óskandi að fleiri sjái gegnum þennan lævísa áróður þessara öfgamanna sem halda þinginu í gíslingu.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.12.2009 kl. 13:07

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sem betur fer þora hvorki Sjálfstæðisflokkur eða Framsókn að setjast aftur í ríkisstjórn.  Því þeir vita sem er að innan þeirra raða eru þingmenn sem ALDREI munu þora að takast á við núverandi vandamál.

Jakob Falur Kristinsson, 4.12.2009 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband