Svínaflensan

Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar. Tilfellum fækkaði bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.Frá 29. júní – 6. desember höfðu greinst 9733 einstaklingar með inflúensulík einkenni, þar af voru 4453 karlar og 5280 konur.

Þá minnka mínar líkur á að fá þessa flensu, sem ég var að vonast til að ég fengi svo slæma að ég dræpist úr henni.  Ég segi nú bara eins og Pétur Jóhann í Fangavaktinni;

Já ég tel mig greindan, alla veganna núna.


mbl.is Tæplega 10 þúsund greindir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hmmm ég hef nú mínar efasemdir. Ertu ekki genginn í Samfylkinguna  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 10.12.2009 kl. 11:35

2 Smámynd: Kalikles

Nú ekki 50.000 eins og sóttvarnarlæknir gaf út, kemur á óvart.

Kalikles, 10.12.2009 kl. 14:13

3 Smámynd: Birna Jensdóttir

'Eg hélt í einfaldleika mínum að það finndust fleiri greindir á Íslandi,en svona er nú það

Birna Jensdóttir, 10.12.2009 kl. 14:33

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú Kolla, ég er genginn í Samfylkinguna og líður vel þar.

Jakob Falur Kristinsson, 10.12.2009 kl. 16:00

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Jakob. Já ég frétti það. Svo bregðast krosstré sem önnur. Númer eitt að fólk finni sinn takt og haldi honum hvert sem leið liggur. Ég óska þér velfarnaðar í þeirri pólitísku vegferð. Það eru fleiri útgengnir FF félagar þar, hef ég heyrt, en málið var með Frjálslynda að það skipti alveg á milli þeirra sem vildu ESB og hinna sem vildu Íslandi allt , nema einn sem vildi bæði  og það er víst ekki hægt. Sjálf vildi ég heldur fá svínaflensu heldur en ESB pestina kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 10.12.2009 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband