Minni losun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hélt í nótt ræðu fyrir Íslands hönd á loftslagsráðstefnu SÞ. Hún sagði að í samvinnu við ESB myndi Ísland vinna að markmiði um að minnka losun um allt að 30% til 2020, miðað við 1990, að því gefnu að metnaðarfullt alþjóðlegt samkomulag í loftslagsmálum náist.

Hvers konar andskotans kjaftæði er í umhverfisráðherra.  Hver hefur veitt henni umboð til að fullyrða svona út í loftið.  30% minni losun fyrir árið 2020 og það í samvinnu við ESB, sem ráðherrann vill ekkert með hafa.  Bara stórhvalir á Íslandsmiðum blása menguðum útblæstri út í umhverfið, sem er meira en fyrirhuguð lækkun umhverfisráðherra.  Við verðu því að byrja á að drepa þá alla til að vernda umhverfið.  Svona yfirlýsingar eru hreint bull út í loftið og skila engu.  Á þessari ráðstefnu var mikið rætt um græna orku, en hvað er græn orka?  Hefur einhver séð græna orku t.d. í rafmagnsleiðslum. Það er betra að sitja heima en mæta á svona ráðstefnu og segja eintómt innihaldslaust kjaftæði. 

GRÆN ORKA ER EKKI TIL.


mbl.is Ísland minnki losun um 30%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Loksins var einhver sem sagði það sem þurftiGóð og þörf grein, vonandi lesa hana sem flestir.

Jóhann Elíasson, 18.12.2009 kl. 11:10

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

þetts er óskyljanlegt, samvinna við ESB... það er komin tími á þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu okkar þar, áður en meiri pening er hennt í undirbúning þjóðarinnar í ESB. Þjóð sem meiri hluti vill ekki í.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.12.2009 kl. 12:15

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alltaf verið að fullyrða að þjóðin vilji hitt og þetta, en hún er aldrei spurð.  Hvað varðar ESB þá er ég einn af þeim, sem er hlynntur aðild.

Jakob Falur Kristinsson, 19.12.2009 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband