Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

John McCan

 John McCain og Sarah Palin,Spennan fer vaxandi í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Nú sýnir ný skoðanakönnun, að John McCain, frambjóðandi Repúblikana, hefur náð forskoti á Barack Obama, frambjóðanda Demókrata, en fyrir viku var staðan allt önnur.

Ekki trúi ég að bandarískir kjósendur kjósi aftur yfir sig annan vitleysing sem er jafnvel verri en Bush.


mbl.is McCain nær forskoti á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttafólk

Mynd 477631Palestínska flóttafólkið frá Al Waleed-flóttamannabúðunum í Írak, sem mun setjast að á Íslandi, kemur til landsins í kvöld. Um er að ræða 29 manns.

Þá er þetta flóttafólk komið til landsins.  En ég er hinsvegar forvitinn um hvað verður gert í málum fólksins sem er í flóttamannabúðunum í Njarðvík og eru yfirfullar.  Þar eru sumir búnir að vera í nokkur ár, alltaf þegar ég ek þarna framhjá spyr maður sig alltaf sömu spurningarinnar;

Á ekkert að gera í málum flóttafólksins í Njarðvík?.


mbl.is Flóttafólkið kemur til landsins í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innbrot

Mynd 477642 Fjórir menn um tvítugt voru handteknir í nótt í tengslum við innbrot í Hafnarfirði og Álftanesi í gær. Fara þessir menn ekki að verða búnir að fá nóg af innbrotum.


mbl.is Fjórir handteknir vegna innbrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rigning

Veðurstofan spáir suðaustan 10-18 m/s á Suðvestur- og Vesturlandi í dag, en 5-10 víðast annars staðar. Rigning eða súld verður sunnan- og vestanlands, en léttskýjað norðaustantil. Í kvöld verður austlægari vindur og á morgun verður hægari vindur og úrkomuminna eftir hádegi. Hiti verður 8 til 16 stig að deginum, hlýjast norðanlands.

Þetta telst nú varla frétt í byrjun september og ég veit ekki af hverju ég er að skrifa um þetta.


mbl.is Rigning eða súld sunnan- og vestanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagforeldrar

Óvenjuleg staða er komin upp nú í haust hjá dagforeldrum í Reykjavík. Fréttir af löngum biðlistum eftir plássi hjá dagforeldrum hafa verið daglegt brauð á þessum tíma árs, en nú ber svo við að framboð eftir plássum virðist vera meira en eftirspurnin, a.m.k. í austurhluta borgarinnar.

Svo er verið að kvarta yfir að það vanti fleiri leikskóla í Reykjavík.  Hvað þessu veldur veit enginn nema ég og ég ætla ekki að segja frá því.  Það er trúnaðarmál við fjóra borgarstjóra.


mbl.is Dagforeldrar lýsa eftir börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður

,,Long Hair Sérkennilegur málsvari lýðræðis í Hong Kong sem kom fólki á óvart fyrir fjórum árum síðan með því að vinna þingsæti á þinginu hefur sýnt að það var engin tilviljun því hann hefur verið endurkjörinn.

Það er margt skrýtið til í Japan.


mbl.is Sérkennilegur þingmaður endurkjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiðar

Veiðar sem miðast eingöngu við að ná stórfiski úr fiskistofnum geta leitt til þess að stofninn verði til lengri tíma litið samsettur af erfðafræðilega lakari einstaklingum. Þetta er meðal niðurstaðna Daða Más Kristóferssonar, sérfræðings við hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

Og samkvæmt tillögum Hafró er allt kapp lagt á að friða smáfisk og veiða helst stóran fisk, en niðurstaða hjá Daða Má Kristóferssyni er þveröfug.

Þetta er enn eitt dæmið um hvað fiskveiðistjórn okkar er mikið rugl og vitneskja lítil.


mbl.is Verra að veiða stóra fiska?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarkall

Mynd 474324Landhelgisgæslunni barst í nótt neyðarskeyti frá Cospas Sarsat gervihnattakerfinu og var skeytið á flugvélatíðni en sendar í kerfinu eru bæði í bátum og flugvélum. Flugvél heyrði merkið um tíma.

Þar sem ekkert fannst og ekki er saknað flugvélar, báts eða annars er líklegt að einhver sendir hafi farið óvart í gang við eitthvert hnjask.  Hinsvegar finnst manni að ef slík tæki fara óvart í gang eigi að tilkynna um það.  En kannski hefur enginn orðið var við að svona tæki hefur farið í gang.


mbl.is Þyrlan leitaði í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klósettsetur

Ég hef oft verið að furða mig á því af hverju karlmenn setja aldrei klósettsetuna niður þegar þeir hafa farið á klósett.  Ég verð að viðurkenna að ég hugsaði aldrei útí þetta á meðan ég var giftur, en vandi mig samt á að loka klósettinu.  Nú þegar ég bý einn og reyni að hafa snyrtilegt á mínu heimili, þá fer þetta mikið í taugarnar á mér.  Þeir sem koma í heimsókn til mín og fá að fara á klósett skiptast í tvo flokka.  Ef það er kona þá er klósettið lokað en opið ef það er karlmaður.  Sl. 3 helgar hef ég verið á meiraprófsnámsskeiði í Reykjavík og á þeirri hæð sem kennslan fer fram er eitt klósett.  Á námskeiðinu eru bæði karlar og konur og ef maður ætlar á það í pásum þarf stundum að bíða eftir að klósettið sé laust.  Ef út kemur kona er setan alltaf niðri og klósettið lokað, en ef það er karlmaður þá er setan alltaf uppi og klósettið opið.

Ekki veit ég hvað veldur þessu, kannski finnst körlum það vera svo mikið kvenmannslegt að loka klósetti?  Þetta er svona eitt af þessum smáu atriðum sem maður lætur fara í taugarnar á sér.  Halda karlar að lokið á klósettsetunni sé bara til skrauts?  Nei lokið er til að loka klósettinu og hindra slæma lykt.

Það þarf kannski að halda sérstök námskeið fyrir karla um notkun á klósettsetum?


Lag fyrir páfann

 Madonna á tónleikum í sumar. Poppdrottningin Madonna kom heldur betur á óvart á tónleikum í Róm í fyrradag þegar hún tileinkaði páfanum lagið „Like a Virgin“, eða „Líkt og jómfrú“.

Er Madonna með þessu að biðja páfann afsökunar á sinni framkomu víða.  Því Pafagarður sakaði hana á sínum tíma og sagði að hún hefði framið djöflalegustu tónleika allra tíma.  Hún sagðist gera þetta vegna þess að páfinn væri Guðs barn.


mbl.is Lag fyrir páfann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband