Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Framsókn

Guðlaugur G. Sverrisson. Vafamál er að varafulltrúi Framsóknarflokksins sé kjörgengur til borgarráðs. Þetta kemur fram í svari sem skrifstofustjóri borgarstjórnar leggur fram í borgarráði í dag, samkvæmt upplýsingum frá Svandísi Svavarsdóttur, borgarfulltrúa VG.

Hvað gerir Óskar Bergsson nú?  Sennilega ekki neitt enda til hvers þarf þessi maður að vera kjörgengur í borgarráð.  Hann er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og annar maður á lista Framsóknar er varamaður fyrir Óskar Bergsson en ekki Guðlaugur Sverrisson, sem skipaði 14. sæti listans.


mbl.is Vafi um kjörgengi varafulltrúa Framsóknarflokks í borgarráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósmæður

Ekki skil ég af hverju er ekki hægt að ganga að launakröfum ljósmæðra.  Þetta er ein mikilvægasta stéttin í heilbrigðiskerfinu.  Þær annast það sem hverri fjölskyldu er dýrmætast, sem eru börnin.  Ekki bara fæðinguna sjálfa, heldur fylgjast þær með allri meðgöngu ófrískra kvenna, bæði fyrir og eftir fæðingu.  Ég styð ljósmæður heilshugar í þeirra baráttu og vona að þetta fái farsælan endir. 

Ef ríkið þarf að spara verður það að finna aðra leið en að halda niðri launum ljósmæðra.


Arður

Hagnaður Alfesca á síðasta rekstrarári, sem endaði í lok júní, jókst um 28%. Nam hagnaðurinn 28,6 milljónum evra samanborið við 22,4 milljónir evra árið á undan. Jafngildir það um 3,5 milljörðum króna. Salan jókst um 9% á rekstrarárinu og nettóskuldir minnkuðu um 25 milljónir evra.

Það væri gott að eiga hlutabréf í þessu félagi það er greinilega á góðri siglingu og með hlutina í lagi.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MvCain

Flokksþing repúblikana er nú hafið í Bandaríkjunum. McCain var kynntur á sviðið af öðrum repúblikönum, og einum demókrata, sem maður sem færi sínar eigin leiðir í stjórnmálum.

Nú hvaða leiðir átti maðurinn að fara, fara ekki allir eigin leiðir ef vel er að gáð.


mbl.is Fer sínar eigin leiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama

Fred Thompson, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður fyrir Tennessee og leikari, hélt ræðu á flokksþingi Repúblikanaflokksins í gærkvöldi.

Má ekki vera frjálslyndur í Bandaríkjunum, en það var eitt af þeim atriðum sem þessi maður var að gagnrýna Obama fyrir.


mbl.is Obama gagnrýndur fyrir frjálslyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leir

Yfirlitsmynd af Gásum. „Ég var í Kína og við vorum að skoða þar fleiri þúsund ára gamlar fornminjar. Þá fóru þeir að segja við mig félagarnir sem voru með mér að þetta væru nú heldur merkilegri fornleifar en þetta sem væri verið að grafa upp úti á Gásum, þar fyndust bara bein úr rollum og hundum. Ég sagði að það væri nú hægt að laga það eitthvað,“ segir Gylfi Traustason.

Bera þessir menn eind og Gylfi Traustason, enga virðingu fyrir öllu því fólki sem vinnur við fornleyfagröft.  Mér finnst ekkert sniðugt að læða kínverskum styttum frá því 200 f. Krist í fornleifar að Gásum og rugla þar með allt starfið.


mbl.is Læddi leirher í fornleifaskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprengingar

Mynd 477204Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð til um hálftíu í gærkvöldi vegna tilkynningar um mikla sprengingu, svartan reyk og eldglæringar við Úlfarsfell. Er komið var á staðinn reyndust starfsmenn Borgarvirkis hafa verið að sprengja fyrir grunni við Bauhaus.

Það er því óhætt að segja að hinn nýi risi á byggingarvörumarkaðnum byrji með hvelli.  Annars hefur heyrst að eigendur Húsasmiðjunnar hafi boðið Bauhaus sínar verslanir til kaups en því hafi verið hafnað að þessum þýska risa, sem mun koma til með að slátra bæði Húsasmiðjunni , BYKO. ofl. á þessum markaði.


mbl.is Mikill hvellur vegna sprengingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr sparisjóðsstjóri

 Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þá hefur stjórn SPM ráðið Bernhard Þór Bernhardsson í stöðu sparisjóðsstjóra frá og með morgundeginum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjóðnum, sem fréttavefur Skessuhorns vitnar til.

Er þetta ekki vegna þess að Kaupþing er að yfirtaka rekstur þessa sparisjóðs og ráðbinginn bara sýndarmennska.


mbl.is Sparisjóðsstjóraskipti í Sparisjóði Mýrasýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðurvíkingur

Mynd 476657 Heræfingin Norðurvíkingur sem hófst í fyrradag kostar íslenska skattgreiðendur fimmtíu milljónir. Á sama tíma og æfingin stendur yfir fer fram loftrýmiseftirlit bandaríska flughersins yfir landinu í nánu samstarfi við æfinguna.

Erum við ekki með samning við Bandaríkin um varnir landsins og eiga þeir ekki að greiða þessar 50 milljónir en ekki íslenskir skattgreiðendur?


mbl.is Norðurvíkingur kostar 100 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frysting lána

Íbúðalánasjóður Fimmtíu umsóknir hafa borist Íbúðalánasjóði um frystingu lána síðan byrjað var að bjóða upp á þann kost um miðjan ágústmánuð. Þá var tekin sú ákvörðun að heimila þeim sem eiga tvær húseignir, en hafa ekki getað selt aðra þeirra, að fresta afborgunum af lánum af annarri eða báðum eignunum.

Þetta er auðskilið flestir eiga nú nóg með að borga af einni íbúð hvað þá tveimur.  Þetta er mun betri kostur fyrir Íbúðalánasjóð, heldur en eignast nokkur hundruð íbúðir á nauðungaruppboði, ef ekki nokkur þúsund íbúðir.


mbl.is Mikill áhugi á frystingu lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband