Lyfjaverð

Ég þurfti að fara til Reykjavíkur í morgun og notaði þá tækifærið og leysti út lyf sem ég nota að staðaldri.  Ég fór í Garðsapótek við Sogaveg og lyfið kostaði rúmar 900 krónur.  Fyrir viku leysti ég út nákvæmlega sama lyfið í Lyfi og Heilsu í Keflavík og þar kostaði það tæpar 1.400 krónur.  Ég spurði apótekarann hvers vegna væri svona mikil munur á verðinu og skýringin var sú að Garðsapótek veitir öryrkjum sérstakan afslátt.  Þess vegna vil ég benda öryrkjum á þetta góða apótek.  Þetta er fljótt að verða talsverð upphæð hjá þeim sem þurfa að nota mikið af lyfjum.

Fisksalar

Mynd 492383 Kristján Berg fiskikóngur gefur ekki mikið fyrir allt að 50 prósenta verðlækkun Fiskisögu sem greint var frá í morgun. Nú sé Fiskisaga loksins með sama verð og aðrir fisksalar.

Gott hjá Kristjáni að halda áfram í samkeppni við fiskbúðakeðjuna Fiskisögu, sem allt ætlaði að gleypa.


mbl.is Loksins með rétt fiskverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðgjöf

Ríkisstjórnin mun að öllum líkindum óska eftir ráðgjöf Evu Joly fyrrum yfirrannsóknardómara í Frakklandi um rannsókn efnahagsbrota í tengslum við bankahrunið. Eva Joly hitti ráðherrana í hádeginu í dag. Fjármálaráðherra sagði hana besta gest sem hægt væri að hugsa sér.

Það verður að segja þessari ríkisstjórn til hróss að hún hefur þó vit á því að leita sér aðstoðar í erfiðum málum.  Ólíkt fyrri stjórn þar sem ráðherrar töldu sig vita allt best og allt getað.


mbl.is Eva Joly ráðleggur ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílvelta

Um kvöldmatarleytið í gær var tilkynnt til lögreglu á Vestfjörðum um bílveltu í Ennishálsi á Ströndum en þar valt flutningabíll á hliðina og lokaði veginum, veður og aðstæður mjög slæmar á vettvangi. Björgunarsveit kom þar til aðstoðar og þurfti að fá kranabíla úr Reykjavík til að koma bílnum á hjólin aftur og var því verki ekki lokið fyrr en um kl. 06:00 í morgun.

Þeir klára hlutina Vestfirðingarnir þótt aðstæður séu erfiðar.


mbl.is Tók 11 tíma að koma bíl á réttan kjöl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófjör

Þorvaldur Hrafn Yngvason. Þorvaldur Hrafn Yngvason gefur kost á sér í 8. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi.

Mikið lifandis skelfing er mikið af fólki sem langar á þing.  Ég bara skil þetta ekki.


mbl.is Vill 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokki í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboð

Kolbrún Stefánsdóttir Kolbrún Stefánsdóttir segist í tilkynningu hafa ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Frjálslynda flokksins. Hún er nú ritari flokksins og mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi.

Þá er nokkuð ljóst að enn verða átök hjá Frjálslynda flokknum, því ég á ekki von á öðru en Magnús Þór Hafsteinsson núverandi varaformaður mun örugglega vilja halda sínu embætti.  Það á ekki af þessum blessuðum flokki að ganga, aldrei friður.  Nú verður endurtekinn sami leikur á landsfundinum í Stykkishólmi og var á síðasta landsfundi, smölun á báða bóga.  Ég ætla ekki að mæta á landsfundinn núna, ég fékk alveg nóg af rugli og vitleysu sem var í gangi síðast.  Ég hef verið duglegur að bjóða mína krafta fram í starfi fyrir þennan flokk, en svo les ég bara um það í blöðunum að búið sé að halda kjördæmisþing í Suðurkjördæmi og stilla upp lista og þar sé Grétar Mar efstur.  Ég er svo reiður að hafa ekki fengið að vita um þetta kjördæmaþing og fá að taka þátt í að stilla upp á framboðslistann, að ég ætla ekki að koma nálægt neinu starfi fyrir þennan flokk fyrir næstu kosningar frekar en margir aðrir sem ég hef rætt við.  Það er engu líkara en Grétar Mar hafi ráðið því einn hverjir væru á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi.  Þetta eru ólýðræðisleg vinnubrögð, sem eru núna að fæla fjölda manns frá flokknum.  Það er búið að skapa svo mikla óánægju í flokknum hér á svæðinu að ég er ekki lengur viss hvort ég kjósi flokkinn aftur.  Því Grétar Mar með sínum vinnubrögðum mun ekki komast aftur inn á þing og getur sjálfum sér um kennt.


mbl.is Kolbrún í varaformannsframboð hjá Frjálslyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það ákveðið

Í morgun gekk ég frá sölu á íbúð minni hér í Sandgerði við Búmenn.  Ef ekki verður komin kaupandi að íbúðinni eftir 6 mánuði eru Búmenn skuldbundnir til að greiða mér út minn eignarhlut.  Ég er búinn að fá loforð fyrir leiguíbúð vestur á Bíldudal á góðum kjörum.  Ég stefni að því að flytja vestur í maí eða júní.  Því fátt er jafngott og sumarið á Bíldudal, alltaf logn, en hér í Sandgerði er aldrei logn.  Þess vegna þarf ég að æfa mig áður en ég flyt að anda eðlilega.  Því ef maður fer út að ganga hér í Sandgerði er nóg að opna bara munninn af og til, því alltaf er vindur, sem sér um að fylla lungun af lofti.

Saks

Saks í New YorkEfnahagskreppan hefur áhrif víða meðal annars á verslunarfyrirtækið Saks á Fimmtu tröð í New York. Baugur Group á 8,5% hlut í fyrirtækinu og samkvæmt frétt New York Post í dag þá er ekki útilokað að sá hlutur hafni í höndum íslenska ríkisins vegna bágrar fjárhagsstöðu Baugs.

Ég ætla nú að vona að íslenska ríkið þurfi ekki að hafa mikil afskipti af þessu fyrirtæki og geti selt þessi hlutabréf fljótt.  Ríkið hefur nóg á sinni könnu með íslensk fyrirtæki sem starfa á Íslandi svo svona lagað bætist nú ekki við.


mbl.is Verður íslenska ríkið hluthafi í Saks?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn

Sigurður Ingi Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir í Syðra-Langholti verður í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti.

Þarna er eitt dæmið enn sem sitjandi þingmaður verður að víkja fyrir nýjum aðila.  Því ekki á ég von á að Framsókn fái nema einn þingmann í þessu kjördæmi, þegar bæði Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson eru ekki í baráttunni.  Það er því útlit fyrir að mikið af nýjum þingmönnum komi á Alþingi eftir kosningar.


mbl.is Sigurður Ingi í fyrsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing

Kaupþing banki Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu.

Hvar eru nú svo allir þessir peningar, ef þeir eru faldir erlendis hlýtur að vera hægt að nálgast þá.  Annars var Davíð Scheving með góða tillögu í Silfri Egils í dag.  Hann sagði; 

"Að þar sem allir þessir peningar væru í skattaskjóli á eyjum í Karabískahafinu, sem Bretar ráða yfir.  Þá ættum við að segja við Breta peningarnir sem við skuldum ykkur eru í ykkar lögsögu og gjörið þið svo vel og sækið þessa peninga og skilið okkur svo afganginum." 

Gott hjá Davíð, hann kom líka inn á að fyrir um 80 árum hefði 1 íslensk króna verið jafvirði 1 danskrar krónu.  Við værum á þessum árum búnir að taka tvö núll af okkar gjaldmiðli og miðað við það þá væri nú 1 dönsk króna sama og 1.900 íslenskar krónur.  Þetta segði okkur það að efnahagsmálum á Íslandi hefði verið 1900 sinnum verr stjórnað en hjá Dönum sem hefðu nú aldrei þótt neinir snillingar á því sviði.


mbl.is 500 milljarðar til eigenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband