Einelti

Sandgerði.Móðir drengs í Grunnskólanum í Sandgerði segir að á bloggsíðum mbl.is sé spjótum beint allharkalega að tveimur drengjum, sem réðust á þriðja drenginn í skólanum.

Því miður er of mikið um að dæmt sé harkalega hér á blogginu og það versta er þegar fólk skrifar ekki undir sínu rétta nafni.  Auðvitað getur ýmislegt gerst í skólum landsins en hver hefur rétt til að dæma aðra?  Vitandi ekki neitt um viðkomandi mál.


mbl.is Óvægin ummæli á bloggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun

Margrét Sverrisdóttir kemur til landsþings Frjálslynda... Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Frjálslynda flokkinn til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur en um er að ræða ógreidd laun.

Það er slæmt að ekki skuli hafa verið gert upp við Margréti á eðlilegan hátt og hún þurft að leita til dómstóla.  Þetta setur ljótan blett á Frjálslynda flokkinn.  Það voru mikil mistök að hleypa Jóni Magnússyni og Nýju Afli í Frjálslynda flokkinn, en það var aðalástæða þess að Margrét fór úr flokknum.  Hún flutti viðvörunarorð um þetta á síðasta landsfundi en á það var ekki hlustað.  Ef það hefði verið gert væri hún sjálfsagt enn í flokknum og þingmennirnir fleiri en nú eru.


mbl.is Frjálslyndi flokkurinn greiði Margréti laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icelandair

Nú munu ríkisbankarnir þrír vera komnir með ráðandi hlut í Icelandair, því þeir hafa neyðst til að taka hlutabréf upp í skuldir.  Við erum sem sagt komin með ríkisflugfélag, ríkisbanka ofl.  Það er því að koma á daginn að Ragnar Reykás, sagði forðum að allt verður ríkisvætt.  Nú er bara eftir að stofna Ríkisflokkinn og banna alla aðra stjórnmálaflokka eins og Ragnar vildi.

Sena

Nú er búið að selja 2 fyrrum stjórnendum hjá gamla Glitnir fyrir tækið Senu, sem er dreifingaraðili fyrir erlenda, innlenda tónlist, tölvuleiki og á fjögur kvikmyndahús  Kaupandi er fyrirtækið Garðarshólmi, sem er í eigu Jóns Diðriks Jónssonar og Magnúsar Bjarnasonar, sem báðir voru yfirmenn hjá Gamla Glitnir.  Kaupverðið er kr. 500 milljónir og engar skuldir yfirteknar, sem mun þýða að um þrír milljarðar verða afskrifaðar, mest hjá Nýja Landsbankanum.  Svona mun þetta allt verða þegar bankarnir fara að selja fyrirtæki sem þeir hafa yfirtekið.  Vinir og kunningjar ganga fyrir og milljarðar tapast.

Stjórnendur reknir

Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hf. hafa verið teknir.  Ástæðan er sú að þeir gerðu eins og svo margir stjórnendur í sjávarútvegi, að veðsetja veiðiheimildir og fá peninga til að braska með á hlutabréfamarkaði og kaupa gjaldeyrir og veðja á að krónan myndi styrkjast og ná þannig í hagnað.  Talið er að Ísfélagið hafi tapað nokkur hundruð milljónum á þessu.  Þetta er bara toppurinn á Ísjakanum, því mörg fyrirtæki í sjávarútvegi voru að spila þetta lottó.  En í stað þess að krónan styrktist þá hrundi gengi hennar á einni nóttu og við það eitt þurrkaðist út allt eigið fé margra sjávarútvegsfyrirtækja og gott betur.  Nú róa mörg þeirra lífróður til að forðast gjaldþrot.  Við eigum eftir að sjá fleiri svona dæmi koma upp á yfirborðið á næstu vikum og mánuðum.

Alvarleg staða

Mynd 179853 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði á Alþingi í morgun að fallandi afurðaverð og birgðasöfnun hefði mjög neikvæð áhrif á afkomu sjávarútvegsins um þessar mundir. Endurskoðunarskýrsla sem hann hefði undir höndum sýndi að staðan væri mjög alvarleg.

Hvar er nú allur hagnaðurinn og hagræðingin, sem kvótakerfið átti að skila.  Við höfum verið með það kerfi í 25 ár og samt er allt á hausnum og fiskistofnarnir í lámarki.  Svo fullyrða margir að ef t.d. handfæraveiðar væru frjálsar eins og Frjálslyndi flokkurinn, hefur lagt til, þá færi hálf þjóðinn í útgerð.  Miðað við þessa skýrslu ætti að vera óhætt að gefa allt frjálst.  Ákveða bara hámarksafla í hverri tegund, því ekki munu allir vilja fara út í þessa atvinnugrein sem sífellt er að tapa peningum.


mbl.is Alvarleg staða sjávarútvegs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunblaðið

Það var fljótt að breytast ýmis skrif blaðamanna Morgunblaðsins, þegar nokkrir kvótagreifar eignuðust blaðið.  Þannig ræðst Kolbrún Bergþórsdóttir með offorsi á Frjálslynda flokkinn með fullyrðingum sem ekki eru hafandi eftir.  En eins og flestir vita hefur Frjálslyndi flokkurinn verið harðastur í andstöðu sinni við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.  Það er ekki amalegt fyrir talsmenn kvótans að hafa fengið Morgunblaðið nánast gefins frá ríkisbanka til að reka áróður sinn.  Ég er hræddur um að auðlindagjaldið sem Morgunblaðið barðist mikið fyrir á sínum tíma verð ekki lengur til umfjöllunar í þessu blaði.  Þetta er blað er svo kallað  "Blað allra landsmanna."  En er að breytast í blað allra kvótabraskara.

Íslendingar hafðir að háði

Í grínfréttablaði, sem gefið er út um fréttir frá Wall Street í New York er gert mikið grín að Íslandi, en blaðamaðurinn segir þar;  "Ísland er gjaldþrota, krónan er ónýt, bankakerfið er óvirkt, fyrirtæki fara á hausinn í stórum stíl og atvinnuleysi er mikið landið nýtur hvergi trausts." 

Þetta er ekki fögur landkynning.  Svo eru menn að kenna hvalveiðum um að þær skemmi fyrir orðspori Íslands erlendis.  En ég spyr bara hvaða orðspori?


Ný framboð

„Efnahagshrunið í haust og vanhæfni stjórnvalda til að taka á því, varð til þess að leiða saman þann ólíka hóp sem stendur að Borgarahreyfingunni,“ sagði Herbert Sveinbjörnsson, formaður nýstofnaðrar Borgarahreyfingarinnar á kynningarfundi í dag. Hreyfingin hefur listabókstafinn O.

Ég fæ ekki betur séð en stefnumál þessarar hreyfingar sé nákvæmlega það sama og önnur samtök undir forustu Bjarna Harðarsonar ofl. eru með og hafa fengið listabókstafinn L.  Annars finnst mér svolítið broslegt við bæði þessi framboð að þau eru með á stefnuskrá sinni að verða lögð niður eftir að ákveðnum breytingum er náð.  Ætli það verði ekki það eina sem þessi framboð bæði afreka þ.e. að leggja sig sjálf niður.


mbl.is Vilja gegnsætt réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verktakar

Drekasvæðið. Á 20 mánaða tímabili hefur iðnaðarráðuneytið...Iðnaðarráðuneytið greiddi verktökum rúmlega 32 milljónir króna á 20 mánaða tímabili, frá miðjum maí 2007 til loka janúar 2009. Rúmur helmingur greiðslnanna eða tæpar 17 milljónir fóru til fjögurra aðila. Verkfræðistofan Efla hf. fékk rúmar fimm milljónir vegna vinnu við Drekasvæðið, Alþjóðaver Ráðgjöf ehf. fékk rúmar 4 milljónir, Netspor tæpar 4 milljónir og Capacent fékk greiddar tæplega 3,6 milljónir vegna ráðninga sex starfsmanna.

Þetta er í sjálfu sér ekki neitt óeðlilegt, nema að eitt þessara fyrirtækja Alþjóðaver Ráðgjöf ehf. er í eigu aðstoðarmanns Össurar, Kristjáns Guy Burgess en það fyrirtæki fékk 4 milljónir fyrir ráðgjöf.


mbl.is Helmingur greiðslna til fjögurra verktaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband