Afsökun

Ásta Möller, alþingismaður Ásta Möller, þingkona Sjálfstæðisflokksins, baðst í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins afsökunar á því að hafa ekki staðið sig betur sem kjörinn fulltrúi, þegar bankakerfið stækkaði ört og að lokum hrundi. Ásta sagði gagnrýni á flokkinn eiga rétt á sér.

Það var mikið að einhver biðst afsökunar á störfum sínum og mættu fleiri taka Ástu sér til fyrirmyndar.  Þetta kemur reyndar í kjölfar mikillar gagnrýni á forustumenn Sjálfstæðisflokksins, sem fram kemur í drögum að skýrslu um starf flokksins.  Hinsvegar sá Geir H. Haarde ekki ástæði til að biðjast afsökunar í fréttum í kvöld.  Heldur gagnrýndi hann nefndarmenn og sagði að þeir ættu að líta til framtíðar en ekki velta sér upp úr fortíðinni.  En mistök fortíðarinnar hljóta að verða að skoðast til að hægt sé að móta framtíðina.


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskriftir

Það virðist engin takmörk sett hvað leggja á miklar birgðar á íslenska þjóð.  Þegar Íslandsbanki tók besta tilboðinu í Árvakur hf. útgáfufélag Morgunblaðsins sem var frá félaginu Þórsmörk en það félag er í eigu nokkurra auðmanna á Íslandi, þá var upplýst að bankinn þyrfti að afskrifa einn milljarð.  En nú hefur verið upplýst að Íslandsbanki hf. og Nýi Landsbankinn munu afskrifa tæpa þrjá milljarða af skuldum Árvakurs.  Samt var þetta talið vera besta tilboðið.  Ástralski fjárfestirinn sem líka gerði tilboð er mjög ósáttur og telur sitt tilboð hafa verið betra.  Þar sem þessar afskriftir lenda á skattgreiðendum finnst mér það vera lámarkskrafa að Íslandsbankinn upplýsi um bæði þessi tilboð.  Sérstaklega þegar það var fullyrt að allt þetta söluferli ætti að vera gegnsætt.  Ég bara spyr hvað réttlætir að skattgreiðendur þurfi að greiða þrjá milljarða til að nokkrir auðmenn geti eignast dagblað?  Í þessum hópi eru nokkrir útgerðamenn og handhafar mikilla veiðiheimilda.  Getur verið að þær veiðiheimildir í eigu þjóðarinnar séu nú notaðar sem veð til að fá lán í svona brask.  Hvernig má það vera að allt í lagi er að afskrifa þrjá milljarða til að bjarga Árvakri hf. á meðan bankarnir eru að bjóða upp íbúðir hjá fólki og hirða af því bifreiðar og gera fólk gjaldþrota.  Árvakur hf. var gjaldþrota og var það bara ekki allt í lagi og réttast hefði verið að taka félagið til gjaldþrotaskipta.  Þetta er ekkert nema pólitísk ákvörðun því Sjálfstæðisflokkurinn þurfti nauðsynlega á þessu blaði að halda nú þegar prófkjör og kosningar eru að nálgast.  Þannig að það virðist ekkert lát vera á spillingunni hér á landi, nema síður sé.

Nýliðun á Alþingi

Mikið er rætt um nauðsyn þess að mikil nýliðun verði á Alþingi eftir næstu kosningar.  Einn af þeim sem gala hæðst er Jón Baldvin Hannibalsson, sem vill verða formaður Samfylkingarinnar og ætlar að bjóða sig fram gegn Ingibjörgu Sólrúnu á næsta landsfundi.  Ég er alveg sammála því að gott væri að fá nýja þingmenn með nýja hugsun á Alþingi.  En Jón Baldvin er nú orðin 70 ára og honum fylgir enginn ný hugsun.  Það verður skrautlegt Alþingi ef öll endurnýjun verður með því að láta yngra fólkið víkja og fá ellilífeyrisÞega í staðinn.  Það er nauðsynlegt að hafa þetta blandað ungt fólk með nýja hugsun og þingmenn með reynslu.  Ég vona að þetta brölt Jóns Baldvins renni út í sandinn.  Hann er ekki alveg saklaus af því ástandi sem nú er, því það var Jón Baldvin sem leiddi Davíð Oddsson til valda á Íslandi með Viðeyjarstjórninni frægu og undirbjó jarðveginn fyrir Framsókn að komast til valda og frá 1991 þegar Viðeyjarstjórnin var stofnuð hefur spilling verið hér landlæg.  Ég horfði í gærkvöld á þáttinn um bandaríska fyrirtækið ENRON og þá áttaði maður sig á því hvar útrásarvíkingarnir okkar lærðu sín fræði.  Það var margt líkt með ENRONog mörgum íslenskum fyrirtækjum.  Framtíðar hagnaður var bókfærður strax og viðskiptavild (goodwill) var orðin hjá sumum ein helsta eignin.  En Jón Baldvin á þing núna.  Nei takk.

Grenivík

Mynd 491933 „Það eru mjög slæmar horfur í markaðsmálum fyrir þær vörur sem við höfum framleitt á Grenivík og því grípum við til þessa ráðs,“ segir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Brims á Akureyri. Þrettán starfsmönnum af sextán hjá landvinnslu Brims á Grenivík var sagt upp fyrir helgi en Þar hafa verið framleiddar saltaðar afurðir.

Alltaf er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur.  Ég get ekki ímyndað mér að þetta geti skipt sköpum fyrir jafn stórt fyrirtæki og Brim er.  En aftur á móti skipti þetta gífurlega miklu máli fyrir íbúa á Grenivík.


mbl.is Undirbúa lokun landvinnslu á Grenivík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bronsstyttur

Kínverskur maður, sem átti hæstu boð í tvær kínverskar bronsstyttur á uppboði í París í síðustu viku, segist ekki ætla að greiða fyrir þær enda séu þær í raun í eigu kínversku þjóðarinnar. Styttunum var rænt í Peking árið 1860.

Hvernig ætlar aumingja maðurinn að sanna rán sem átti að hafa skeð fyrir um 150 árum.  Það er hreinlega ekki hægt og því er nokkuð öruggt að hann mun ekki fá þessar styttur.


mbl.is Ætlar ekki að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttamenn

Mun fleiri fréttamenn hafa verið myrtir það sem af er ári heldur en í fyrra. Alls hafa 26 fréttamenn verið myrtir í ár en 16 á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasamtökum fréttamanna.

Flest þessi morð hafa verið í Miðausturlöndum þar sem allt logar í ófriði.  Hvað eru fréttamenn að þvælast á þessum svæðum þar sem þeir eru ekki öryggir um líf sitt?  Eða er fréttaþorstinn slíkur að menn eru tilbúnir að leggja líf sitt að veði til að ná í  fréttir.


mbl.is 26 fréttamenn myrtir í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppsagnir

Meðal verkefna Stíganda var bygging kirkjunnar á Blönduósi. Stjórn trésmiðjunnar Stígandi á Blönduósi hefur ákveðið að segja upp öllum starfsmönnum fyrirtækisins, alls fimmtán manns. Að sögn Einars Kolbeinssonar, framkvæmdastjóra Stíganda, er um varúðarráðstöfun að ræða vegna óvissu um verkefnastöðu félagsins. Flestir starfsmanna fyrirtækisins eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest.

Enn fjölgar þeim atvinnulausu og ekki búið enn.


mbl.is Stígandi segir öllum upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gangahrun

Palestínumaður gengur framhjá munna smyglganga á Gaza.Fimm Palestínumenn fórust í dag þegar smyglgöng milli Gaza svæðisins og Egyptalands hrundu yfir þá, að sögn lækna. Ekki lágu fyrir nánari upplýsingar um þá sem fórust.

Það er hættulegt að vera glæpamaður.  Ekki er hægt að kenna Ísrael um þessi mannslát.


mbl.is Fimm fórust við gangahrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löng sigling

Skinney SU er á heimleið frá TaívanÍ morgun voru 215 íslensk skip á sjó, að sögn Landhelgisgæslunnar og Vakstöðvar siglinga. Þar var verið að fylgjast með alls um 250 skipum. Fylgst er með íslenska flotanum hvar sem hann er staddur. Það skip sem var fjærst heimahöfn var Skinney SF, sem var í höfn á Sri Lanka.

Það er ekkert óeðlilegt við að þetta skip sé langt í burtu því um er að ræða nýtt skip sem smíðað var í Taívan, en þaðan fór skipið 10. febrúar sl.  Á því skipið eftir nokkuð langa siglingu enn til að komast í heimahöfn, sem er Hornafjörður.  Þetta mun vera fyrra skipið af tveimur sem Skinney-Þinganes hf. lætur smíða fyrir sig í Taívan. 


mbl.is Skinney SU á Sri Lanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opera

Jón S. von Tetzchner, forstjóri Opera. Rekstur norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera, sem Íslendingurinn Jón Stephensson von Tetzchner stofnaði og stýrir, gekk afar vel á síðasta ári þrátt fyrir fjármálaumrót í heiminum. Alls nam hagnaður félagsins á árinu 90 milljónum norskra króna og áttfaldaðist frá fyrra ári.

Þetta sýnir og sannar að ekki var öll útrásin rugl og vitleysa.  Enda bankaruglið mest hér heima á Íslandi.  Það sem við bjuggum til loftbóluhagkerfi.  Allir ætluðu að græða á engu og enduðu í þroti, þótt nóg væri til af lofti.


mbl.is Opera á mikilli ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband