Fannst látinn

Nakti maðurinn sem mikil leit var gerð að í gær á Esjunni fannst látinn í Gunnlausskarði í gærkvöldi.  Það er nokkuð augljóst að maðurinn hefur klikkast eitthvað og ætlað að drepa sig.  En óneitarlega er aðferðin sem hann notar talsvert geðveik.

Nakinn maður

Talsverður viðbúnaður er af hálfu lögreglu við Esju. Þyrla Landhelgisgæslunnar er að leggja af stað til að aðstoða við leit í Esjunni að karlmanni, sem sást þar nakinn á gangi í 600 metra hæð um hádegisbil í dag. Lögregla og björgunarsveitarmenn með sporhunda hafa leitað í fjallinu síðustu klukkustundir en ekkert fundið.

Hvaða læti er þetta má maðurinn ekki vera nakinn á toppi Esjunnar ef hann vill og að Landhelgisgæslan skuli vera notuð í svona fíflagang er hneyksli á meðan varðskipin liggja í höfn vegna fjárskorts.  Hver ætlar að borga fyrir þessa andskotans vitleysu.


mbl.is Maðurinn enn ófundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megrun

Eitt þúsund Íslendingar borða megrunarlyf fyrir 44 milljónir á ári. Vinsælustu lyfin eru Xenical, Acomplia og Reductil en mánaðarskammtur kostar á bilinu sjö til sextán þúsund krónur. Karlar eru í meirihluta þeirra sem fá lyfin.

Ég hef ekki mikla trú á þessum megrunarlyfjum og að eyða 44 milljónum í þessa vitleysu og að Tryggingastofnun skuli greiða 60% af kostnaði er til skammar.  Fólk á bara að hreyfa sig meira.  Besta megrun sem ég hef fengið var þegar ég byrjaði sjómennsku 1997 eftir rúma 20 ára skrifstofuvinnu og lítillar hreyfingar. ´

Ég var 85 kg. en eftir 3-4 mánuði á sjónum var ég orðin rúm 60 kg.


mbl.is Megrun fyrir 44 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífsleiði

Í dag er einn af þessum dögum sem mér finnst allt leiðinlegt.  Ég hef verið þunglyndissjúklingur frá því ég lenti í þessu andskotans slysi sem gerði mig að öryrkja.  Svo gerir þessi helvítis ríkisstjórn ekkert af viti.  Fyrirbærið Samfylking sem öllu lofaði fyrir kosningar, svíkur allt helvítis asnarnir.  Ef ég ætti byssu myndi ég skjóta allt þetta andskotans hyski og óska þess að það færi allt lóðrétt til helvítis.  Ég reyni að spila tónlist til að reyna að komast í betra skap en þá koma nágrannarnir og kvarta yfir hávaða.  Ég ætlaði í bíltúr en þá var bíllinn nær því bensínlaus og ég á til um 50 krónur svo ekki fer ég langt á því og ekki þýðir að ætla að fara í verslun.  Ofan á allt þetta er ég að verða tóbakslaus, sneri íbúðinni nær því á hvolf í morgun í leit að tóbaki og fann einn pakka af smávindlum og bréf af píputóbaki og er að svæla þetta i mig og við liggur að ég kafni við hvern smók og fæ heiftarleg hóstaköst á eftir.  Ef ég ætti til pening færi ég í ríkið og drykki mig blindfullan til að reyna að slaka á og tveggja ára bindindið væri farið en mér er andskotans sama.  Ég þoli ekki þetta örorkulíferni ekki lengur.  Af hverju get ég ekki fengið krabbamein eins og venjulegt fólk og drepist úr því.  Þetta er ekki hægt lengur ekkert nemaFootinMouth  djöfuls vandræði og eymd.Angry Angry Alien Alien Ninja Ninja .  Ætlar þessi andskotans dagur aldrei að líða, hann er mikið lengri en aðrir dagar og svo þurfa endilega að vera 31 dagur í þessum mánuði svo það er talsvert langt í mánaðarmót og fimmtíu krónurnar verða að duga það sem eftir er af mánuðinum.  Ég veit að margt fólk í heiminum hafa það verr en ég en það er sama hvað mörg börn svelta í Afríku það hjálpar mér ekki.  Ég er alger aumingi og kjarklaus í þokkabót.  Þori ekki einu sinni að drepa mig nema þá blindfullur.  Nú er alger uppgjöf á þessu andskotans lífi.

Hrefna drepinn

Sjórinn litaðist blóði. Hópur ferðamanna í hvalaskoðun á Skjálfanda fylgdist agndofa með miklu sjónarspili þegar vaða af háhyrningum réðst að hrefnu, drápu hana og átu. Um 100 farþegar tveggja báta frá hvalaskoðuninni Norður-Siglingu á Húsavík urðu vitni að atrennunni sem varði hátt í klukkustund og var fólkinu, sem flest var erlent, mjög brugðið.

Þá hafa þessir ferðamenn fengið raunverulega hvalaskoðunarferð.  Ekki voru hrefnuveiðimenn þarna að verki, heldur er þetta bara eðlilegur gangur í lífríki sjásvar.  Háhyrningar eru grimmar skepnur og oft kallaðir úlfar hafsins.  Svo er verið að halda því fram að veiðar á 40 hrefnum stórskaði stofninn.  Það er öruggt að við veiðar á hrefnu kvelst dýrið ekkert í samanburði við þetta og ætti að fræða fólk betur um þessi mál.  Við breytum ekki gangi náttúrunnar og eitt er 100% öruggt að þetta er ekki eina hrefnan á Íslandsmiðum sem hlýtur svona grimm örlög af völdum háhyrninga.


mbl.is Hrefna barðist fyrir lífi sínu við hóp háhyrninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fela aðgerðir

Í blöðunum í morgun voru bankarnir sem hirtu tvö félög af Hannesi Smárasyni, að reyna að leiðrétta að þetta hefði verið gert.  Það var fullyrt að það eina sem hefði verið gert væri að skipt hefði verið um nöfn á félögunum og starfssemi þeirra væri óbreytt.  En ekki kom fram í leiðréttingunni að félögin skiptu líka um eigendur og á Landsbankinn á annað og Byr hitt.

Þetta kalla ég ekki leiðréttingu, heldur eru þessir aðilar að klóra yfir eigin skít.


Gjaldeyrisforðinn

Nú fer að koma að því að ríkið taki 500 miljarða lánið erlendis til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.  Til hvers er verið að taka þetta lán.  Við þyrftum ekki að auka þorskveiðarnar nema um 25-50 þúsund tonn þá værum við búin að ná þessari tölu inn í hagkerfið og styrkja gjaldeyrisforðann mun meira  Það er miklu gáfulegra að ganga á eignir í núverandi vandræðum.  Þarf alltaf að taka lán ef eitthvað að gera?

Klósettferðir

Leiðsögumenn hafa verið beðnir að halda dagbók um klósettferðir sínar á ferðalagi sínu um landið. Ástæðan er hörð gagnrýni á útisalerni frá félagsmönnum að undanförnu. Ferðamálastjóri vill nota upplýsingarnar til að bæta úr ástandinu.

Ekki held ég að þessi skráning bæti mikið ástandið jafnvel þótt ljósmynd fylgdi með af hverri klósettferð.  Þetta er dæmigert fyrir skýrslugerð sem engin les síðan.  Þetta er fáránlegt.


mbl.is Skrásetja klósettferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt lokað

Langi Mangi á Ísafirði. Langi Mangi, elsta kaffi- og ölhús Ísafjarðar, leggur um laupana um næstu mánaðarmót. Staðurinn hefur verið rekinn frá árinu 2003 þegar Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir opnuðu hann. Árið 2005 urðu eigandaskipti þegar Guðmundur Hjaltason og Matthildur Helgadóttir keyptu staðinn og hafa þau rekið hann síðan.

Það er eftirsjá af þessum stað fyrir Ísafjörð.  Ég hef reyndar aldrei komið þar inn en heyrt vel látið af honum.  Svona fara fjaðrirnar að fljúga frá Vestfjörðum á meðan fólkið þarna vill ekki starfa með okkur í BBV-Samtökunum og berjast fyrir sjálfstæði Vestfjarða.


mbl.is Elstu krá Ísafjarðar lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venus HF

Frystitogarinn Venus. Frystitogarinn Venus HF er nú að veiðum langt inni í rússnesku lögsögunni í Barentshafi. Fram kemur á heimasíðu HB Granda, að aflabrögðin hafi verið frekar róleg. Aflinn sé aðallega þorskur en einnig veiðist ýsa með þorskinum.

Skipið er víst að fiska ágætlega en heræfingar Rússa hafa truflað veiðar skipsins og ætla ég að vona að skiptið verði ekki hertekið því bróðir minn er þarna stýrimaður.  Venus er eitt fárra íslenskra skipa sem nýtir íslenska þorskkvótann á þessu svæði.  Skipið  hefur gert það alveg síðan við fengum þarna kvóta.


mbl.is Heræfingar töfðu för Venusar á miðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband