Klósettferðir

Leiðsögumenn hafa verið beðnir að halda dagbók um klósettferðir sínar á ferðalagi sínu um landið. Ástæðan er hörð gagnrýni á útisalerni frá félagsmönnum að undanförnu. Ferðamálastjóri vill nota upplýsingarnar til að bæta úr ástandinu.

Ekki held ég að þessi skráning bæti mikið ástandið jafnvel þótt ljósmynd fylgdi með af hverri klósettferð.  Þetta er dæmigert fyrir skýrslugerð sem engin les síðan.  Þetta er fáránlegt.


mbl.is Skrásetja klósettferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn.

Fyndin könnun. Ætli þau þurfi að hafa mæliglös og vigt svo  Félagsmálastjóri  verði virkilega fróður eftir þessa mikilvægu könnun.

Kær kveðja/Rósa.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 12:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég gef nú skít í svona kannanir.

Jóhann Elíasson, 24.7.2008 kl. 15:02

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað þarf að vigta allt og mæla svo skráningin verði rétt.  Jóhann þú getur ekki talað svona ef þú ferð upp á hálendið og þarft að skíta.

Jakob Falur Kristinsson, 24.7.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband