Allt lokað

Langi Mangi á Ísafirði. Langi Mangi, elsta kaffi- og ölhús Ísafjarðar, leggur um laupana um næstu mánaðarmót. Staðurinn hefur verið rekinn frá árinu 2003 þegar Elfar Logi Hannesson og Marsibil G. Kristjánsdóttir opnuðu hann. Árið 2005 urðu eigandaskipti þegar Guðmundur Hjaltason og Matthildur Helgadóttir keyptu staðinn og hafa þau rekið hann síðan.

Það er eftirsjá af þessum stað fyrir Ísafjörð.  Ég hef reyndar aldrei komið þar inn en heyrt vel látið af honum.  Svona fara fjaðrirnar að fljúga frá Vestfjörðum á meðan fólkið þarna vill ekki starfa með okkur í BBV-Samtökunum og berjast fyrir sjálfstæði Vestfjarða.


mbl.is Elstu krá Ísafjarðar lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski þú kynnið ykkur málið, Langi Mangi lokaði því í fyrra var opnaður nýr og stór staður sem er bæði með mat og svo djamm, og heldur utan um meiri starfssemi en þetta bara. Langi Mangi meikaði bara ekki samkeppnina, en menninginn þarna færðist upp engu að síður.

Sigfus 24.7.2008 kl. 13:29

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Samkeppnin er hörð í þessu eins og mörgu öðru.

Jakob Falur Kristinsson, 24.7.2008 kl. 15:13

3 Smámynd: Gló Magnaða

Því miður kemur ekki unglingastaður í stað Langa Manga. Á tímabili voru sömu krakkarnir þarna og voru í félagsmiðstöðinni en Erik hefur gert sitt besta til að breyta því. En "epillutónlist" er því miður enn spiluð þarna og fælir því mjög marga frá. 

Gló Magnaða, 31.7.2008 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband