8.12.2009 | 12:05
Leynd
Þingmenn Hreyfingarinnar gagnrýna málflutning formanns fjárlaganefndar, Guðbjarts Hannessonar, vegna þeirrar leyndar sem hvílir á gögnum er varða Icesave. Í fréttatilkynningu segjast þeir hafa ítrekað óskað eftir því í ræðustóli Alþingis.
Þessi leynd er mjög skiljanleg, því að oft hefur það komið fyrir að trúnaðarupplýsingum, sem þingmenn fá er lekið í fjölmiðla, sem matreiða síðan eftir smekk hvers og eins. Slíkt athæfi er einungis til að valda óróa með þjóðinni og er hann þó nægur fyrir.
![]() |
Segjast ítrekað hafa beðið um að leynd yrði aflétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 11:56
Framtaksjóður Íslands
Stofnfundur Framtakssjóðs Íslands fer fram á Grand hótel í dag en hann hefur verið í undirbúningi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða um nokkra hríð. Hlutverk Framtakssjóðs Íslands verður að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.
Þar sem ákveðið hefur verið að veita engar upplýsingar um þennan sjóð fyrr en eftir stofnun hans. Veit enginn hvað þessi sjóður á að gera. Það er sennilega líka best að hafa það þannig ef sjóðurinn ætlar ekkert að gera, þá svíkur hann engin loforð.
![]() |
Stofnfundur Framtakssjóðs í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 11:51
Neyðarlögin
ESA hefur fallist á sjónarmið Íslands í máli lánardrottna íslensku bankanna í bráðabirgðaniðurstöðu sem send hefur verið til forsætisráðuneytisins. Um er að ræða kvörtun hóps kröfuhafa á hendur bönkunum, SPRON og Sparisjóðabankans vegna aðgerða yfirvalda í tengslum við setningu neyðarlaganna.
Þá liggur það fyrir að neyðarlögunum verður ekki hnekkt. ESA, sem er eftirlitsstofnun EES-samningsins, fellst því á rök Íslands. En þá eigum við eftir að leysa Icesave, sem margir þingmenn halda að sé hægt að kjafta í burt og gera upp með löngum ræðum um allt milli himins og jarðar. Davíð Oddsson vitnaði oft í ömmu sína við hin ýmsu tækifæri. Nú notum við visku Davíðs og tilkynnum Bretum og Hollendingu, að amma Davíðs hefði sagt að við ættum ekki að greiða Icesave.
Þar með er það mál dautt og grafið.
![]() |
Fallist á sjónarmið Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 11:41
Flóttamenn
Alls fengu tíu flóttamenn hæli á Íslandi en 65 sóttu um slíkt hæli á síðasta ári. Ríki Evrópusambandsins veittu 76.320 flóttamönnum hæli á síðasta ári, samkvæmt nýrri skýrslu frá Hagstofu Evrópu. Alls sóttu 281.120 manns um hæli í ríkjum ESB á síðasta ári. Flestir þeirra sem fengu hæli í ríkjum ESB koma frá Írak.
Að veita 10 af 65 flóttamönnum hæli á Íslandi, er okkur til skammar. Við getum gert miklu betur og ekki veitir af að fjölga fólki á Íslandi nú þegar margir eru að flýja land. Því búið er að sjá til þess að barneignum mun fara fækkandi og því vantar okkur fleira fólk. Við gætum fljótlega orðið milljóna þjóð með því að veita öllum flóttamönnum, sem hingað leita hæli.
![]() |
Tíu flóttamenn fengu hæli á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 11:34
Forseti Íslands
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði í ræðu á þingi Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í gær að nýting á jarðhita og vatnsorku hefði styrkt efnahagslíf Íslendinga á undanförnum áratugum. Þessi árangur hefði auðveldað Íslendingum að glíma við efnahagserfiðleikana sem fylgdu falli bankanna og gæti orðið meginstoð þeirrar uppbyggingar sem myndi gera Íslendingum kleift að styrkja efnahagslíf og velferð þjóðarinnar á ný.
Þetta er alveg rétt hjá forsetanum. En vandamálið er að ákveðinn hópur hér á landi, sem kalla sig umhverfisverndarsinna, munu alltaf reyna að hindra að nýta þessar auðlindir. Ef einhverstaðar á að virkja vatnsafl, þá er mótmælt á þeim forsendum að verið sé að breyta náttúru Íslands. Virkjun jarðhita er mótmælt á forsendum þess að þá komi vond lykt, sem berist langar leiðir með andrúmsloftinu. Öllum framförum er mótmælt og þessir aðilar virðast telja að Ísland eigi að vera eins og við landnám og snerta ekkert í okkar náttúru.
En hvað sem allri náttúruvernd líður munum við ALDREI geta haft allt óbreytt. Eldfjöll munu halda áfram að gjósa þrátt fyrir öll mótmæli. Einnig munu stórhvalir, sem eiga að vera heilög dýr, halda áfram að blása eiturefnum út í andrúmsloftið.
Nú er haldin mikil ráðstefna í Kaupmannahöfn, þar sem ríki heimsins ætla að takmarka losun eitruð efni út í andrúmsloftið og draga þar með úr hlýnun jarðar. En hlýnun jarðar er EKKI af mannavöldum. Allt frá því að jörðin varð byggileg fyrir milljónum ára hafa skipts á kuldaskeið og hlýnunarskeið. Sjávarhæð hefur bæði lækkað og hækkað á þessu tímabili og þessu mun enginn mannlegur máttur geta breytt.
![]() |
Forseti Íslands: Nýting orku auðveldar glímu við hrunið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 11:14
Ég framdi morð
Ég hef einu sinni á ævinni framið morð og komst upp með það. En þannig var að við hjónin áttum kött, sem var læða. Eitt sinn tókum við eftir að hún var hætt að koma og borða matinn sinn og virtist hreinlega gufuð upp. Við fórum að leita og fundum að lokum köttinn í neðstu hillunni í fataskáp í einu barnaherbergjanna. Þar lá kisa og hafði eignast fjóra kettlinga, en einum hafði hún hent til hliðar og gaf honum ekki að drekka. Við fylgdumst með kettinum í skápnum og alltaf var sama sagan að einn kettlingurinn varð alltaf útundan og þótt ég setti hann á spena hjá móðurinni tók hún hann strax og henti til hliðar. Á meðan hinir kettlingarnir þrír döfnuðu vel, var sá fjórði stöðugt veiklulegri og gat ekki orðið staðið upp eins og hinir, sem móðirin sinnti vel og lék við þá. Ég sá að með sama áframhaldi myndi þessi aumingja kettlingur drepast úr hungri, sem var augljós ætlun móðurinnar, sem hefur sjálfsagt fundið að eitthvað var að hjá þessum litla ræfilslega kettlingi. Þá greip ég til minna ráða og tók kettlinginn og setti í poka og fór niður í fjöru og fann stein og setti líka í pokann. Síðan henti ég pokanum í sjóinn, en eitthvað hafði ég bundið illa fyrir pokann, því að um leið og hann skall í sjóinn, þá byrjaði kettlingurinn að hamast í pokanum og steinninn datt úr og pokinn flaut með mjálmandi kettlingnum í fjöruborðinu. Ég fékk mikið samviskubit og óð út í sjóinn og náði pokanum og tók hann og flýtti mér heim. Við hjónin settum kettlinginn á þurrt handklæði og reyndum að nudda lífi í hann aftur. Eftir talsverðan tíma tók kettlingurinn við sér og fór að hreyfa sig, þá tók ég hann og fór með hann aftur til móður sinnar í skápinn og lét hann hjá hinum kettlingunum og síðan fórum við að sofa. Mitt fyrsta verk næsta morgun var að fara og athuga með kettlinginn. En þá blasti við sú sjón að kötturinn hafði hringað sig utan um þrjá kettlinganna en sá fjórði lá dauður á gólfinu. Þá fyrst áttaði ég mig á að;
Ég var orðinn morðingi.
8.12.2009 | 10:44
Grindavík
Petrína Baldursdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Grindavík og Garðar Páll Vignisson, fulltrúi Vinstri grænna, takast á vegna myndunar nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur á vef bæjarfélagsins. Á sunnudagskvöldið var greint frá því að Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG hefðu myndað nýjan meirihluta í bæjarstjórninni en fulltrúar VG hættu stuðningi við fyrri meirihluta Samfylkingar og framsóknar á föstudag.
Ef bæjarfulltrúar ætla að lifa í fortíðinni en ekki horfa til framtíðar er þessi nýi meirihluti dauðadæmdur, áður en hann tekur til starfa. En samt er ljóst að;
Framsókn er í fýlu.
![]() |
Bæjarfulltrúar takast á |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2009 | 10:34
Alþingi
Formenn þingflokka áttu í dag fund með forseta Alþingis um atburði morgunsins í fjárlaganefnd. Í kjölfarið funduðu formenn flokkanna og á næsta klukkutíma munu fulltrúar flokkanna í fjárlaganefnd setjast niður og ræða málin. Einn nefndarmanna telur þó alls óvíst að niðurstaða fáist.
Auðvitað fæst engin niðurstaða og það furðulega er, að það þurfi að semja sérstaklega um að ákveðið mál fari til fjárlaganefndar. Ég hélt að eftir hverja umræðu á Alþingi færu mál nánast sjálfkrafa til viðkomandi nefndar. En það á ekki við um Icesave-frumvarpið, þar er annarri umræðu ekki lokið og því fer mákið ekki til fjárlaganefndar. En svo virðist, sem fjárlaganefnd vilji ekki taka við málinu aftur. Því munu þingmenn aftur fara að ræða um Icesave, næstu daga og nætur. En öll sú umræða er tilgangslaus og skilar engu. Framsóknarmaðurinn Höskuldur Þórðarson, sagi í fréttum í gær að það ætti eftir að ræða þetta mál vel og lengi áður en kæmi að málþófi og engar líkur væru á að það kæmi til fjárlaganefndar á næstunni, en þar á þingmaðurinn sæti. Ef öll sú umræða, sem hefur verið um þetta mál við aðra umræðu og er ekki málþóf. Þá býður okkar mikill hryllingur, þegar sjálft málþófið tekur við, sem mun sennilega standa fram á næsta ár.
Eftir allar þær ræður, sem hafa verið fluttar um Ivesave-frumvarpið, eigi síðan að taka við málþóf með endurteknu efni. Hvort sem þingmönnum líkar það betur eða verr, getum við ALDREI komist hjá því að greiða Icesave-skuldina. Auðvitað mun það ekki afla núverandi ríkisstjórn neinna vinsælda, en svo virðist vera að stjórnarandstöðunni sé svo umhugað um að núverandi ríkisstjórn sitji áfram, að þeir leggja nótt við dag til að forða henni frá falli. Ástæðan er einföld;
Stjórnarandstaðan treystir sér ekki í ríkisstjórn.
![]() |
Fundað utan þingsals |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2009 | 11:40
Spakmæli dagsins
Við erum snillingar og græðum,
meira að segja á kreppunni.
(Fyrrverandi bankamenn)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 11:36
Smölun í Tálkna
Bæði Dýraverndunarráð og Bændasamtök Íslands hafa lýst stuðningi við að villifé, sem eftir er í Tálkna í Tálknafirði, verði fangað og því komið undir manna hendur.
Það sem þarna á sér stað er ekki hefðbundin smölun, heldur er reynt að ná sem mestu af þessum kindum til að flytja það til slátrunar. Það fé sem ekki næst með góðu móti er síðan skotið af sjó og í eitt skipti var notuð þyrla til að skjóta þetta fé. Þetta fé hefur lifað villt í Tálkna í mörg ár og virðist ágætlega getað bjargað sér. Þessar kindur gera engum neitt eða valda neinum skaða og því ætti að leyfa því að vera þarna í friði. Það gæti verið gott fyrir ferðaþjónustu að sýna villtan stofn af íslensku sauðfé. Því þótt nær árlega sé verið að slátra þessum kindum, kemur fé alltaf aftur í Tálkna, sem bendir til þess að sauðkindin er að sækja í eitthvað þarna, sem ekki hefur verið kannað vel.
Látum fé í friði í Tálkna.
![]() |
Styðja smölun villifjár í Tálkna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 9
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 802099
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
191 dagur til jóla
Nýjustu færslurnar
- Taka ber Samtökin 78 af fjárlögum ríkisins og stöðva villutrú biskups
- Mót-2. Mosó. 19. maí, 2025.
- Mót-1. Mosó. 12. maí, 2025.
- Kyn- og trúvillta kirkjan, kyrjar lofsöng um Allah
- Amnesty International lítilsvirðir konur
- Of langt í burtu
- Til samanburðar og íhugunar
- Ísrael, Íran og heimsfriðurinn
- Þjóðarváin mikla
- Aðþrengd klerkastjórn