1.7.2008 | 19:24
Nýtt í innflutningi
Nú eru fluttir inn í stórum stíl glæpamenn frá fyrrum austurtjaldslöndunum og hreiðra um sig hér. Margir af þeim Eistum og Lettum, sem hafa verið handteknir fyrir innflutning á eiturlyfjum eru yfir sig hamingjusamir ef þeir verða handteknir og vistaðir á Litla-Hrauni. Ég frétti af mönnum þar sem voru mjög ánægðir. Þeir fengju frítt húsnæði og fæði. Einnig gætu þeir unnið og safnað saman einhverjum peningum til að senda heim. Þetta gæti ekki verið betra.
Nú vaknar sú spurning hvers vegna íslenskir skattgreiðendur þurfi að greiða fyrir þessa glæpamenn og af hverju er þeim ekki vísað úr landi og sendi heim til sín. Höfum við ekki nóg með okkar íslensku glæpamenn. Fyrir þessa erlendu aðila er áhættan engin þótt þeir taki að sér að smygla hingað eiturlyfjum. Þeim finnst bara betra ef þeir eru handteknir.
Svo er fólk undrandi á að eiturlyf flæði inn í landið. Nein burt með þetta lið úr landinu sem allra fyrst. Því fyrr, því betra.
1.7.2008 | 18:37
Aumingja krónan
Krónan veiktist í dag um 0,7%. Gengisvísitala krónunnar var 159,40 í morgun en er nú 160,50. Velta á millibankamarkaði var 38,1 milljarðar. Gengi Bandaríkjadollars er 79,42 krónur, gengi breska pundsins 158,30 krónur og gengi evru er 125,34 krónur.
Ég er farinn að vorkenna aumingja krónunni, hún er alltaf að veikjast meir og meir. Bara spurning hvenær andlátið kemur og útförin.
![]() |
Krónan veiktist í dag um 0,7% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2008 | 18:18
Svara athugasemdum
Íslensk stjórnvöld munu skila Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) athugasemdum í tengslum við Íbúðalánasjóð innan mánaðar. Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu kemur fram að verði það niðurstaða ESA að um ólögmæta ríkisaðstoð hafi verið að ræða getur það leitt til þess að stjórnvöld þurfi að endurkrefja Íbúðalánasjóð um þá fjárhæð sem þessari ríkisaðstoð nemur frá 1998
Þurfum við nokkuð að taka mark á þessu frekar en áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna um íslenska kvótakerfið. Við erum sjálfstæð þjóð og þótt við höfum undirritað einhverja samninga eða sáttmála gerum við bara það sem okkur sýnist og hættum að hlusta á svona kjaftæði erlendis frá. Flestar þessar undirskriftir hafa átt sér stað í koktilboðum erlendis og því ekki marktækar.
Það verða þessir aðilar að skilja sem eru að finna að okkar stjórnkerfi, sem fornir víkingar segjum við þeim bara að steinhalda kjafti.
![]() |
Stjórnvöld svara ESA innan mánaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2008 | 18:06
Já var það ekki
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag tekið ákvörðun um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 2008-2009. Þorskaflinn verður hinn sami og á yfirstandandi fiskveiðiári, eða 130 þúsund tonn. Aflamark í ýsu og ufsa lækkar en minna en Hafró lagði til.
Af hverju fór ráðherra ekki bara nákvæmlega eftir tillögum Hafró, þetta er bara sýndarmemennska að breyta aðeins frá tillögu Hafró og skiptir engu máli. Til hvers er ráðherra að leggja í vinnu við nýtt frumvarp um aukin geymslurétt á milli ára. Hvað eiga menn að geyma? Það eina sem verður geymt eru fiskiskipin sjálf og atvinnulaust fólk. Til þess þarf ekki neitt sérstakt leyfi. Þetta verður mun harkalegra á næsta ári því margir geymdu þorsk á milli fiskveiðiáranna 06/07 til 07/08 en það verður ekki núna.
Fyrst þessi vitleysa á að halda áfram 25. árið ættum við kannski að skoðaða aðferðir Dana við stjórn fiskveiða en þar er þorskkvótinn svo lítill að litið er á hann sem meðafla og má slíkur afli vera 20% af heildarafla hvers skips. Eins og þorskkvótinn er orðinn hér á landi er hann nánast tekinn sem meðafli. Bein sókn í þorsk er löngu hætt.
Sonur minn er skipstjóri á dragnótabát í Hansholm, í Danmörku og er þorskkvóti bátsins 6 tonn en þar sem báturinn er búinn að veiða um 100 tonn af öðrum tegundum aðallega kolategundir, má hann landa 20 tonnum af þorski, þótt þorskkvótinn sé aðeins 6 tonn.
Með þessari aðferð er sókninni beint frá þorskveiðum í aðrar tegundir. Svona fyrirkomulag gæti auðveldað íslenskum útgerðarmönnum að þrauka af þá vitleysu sem nú er í gangi hér á landi. Við ættum einnig að reyna að ná samningum við Grænlendinga um veiðar á þorski við Austur Grænland og heimila þeim í staðinn að veiða rækju hér við land, sem við sinnum lítið. Gæti ekki líka verið að þorskurinn við Austur Grænland sé frá Íslandi komin og hér sé því um sameiginlegan stofn að ræða.
![]() |
Þorskkvótinn 130 þúsund tonn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2008 | 17:13
Öryrkjar
Ég er alltaf að sjá greinar í blöðunum um hvað ríkisstjórnin sé að gera til að bæta kjör öryrkja og eldri borgara, nú síðast grein eftir Ástu R. Jóhannesdóttir alþingismann, þar sem hún fór yfir alla þá áfanga sem ríkisstjórnin er búin að gera og næsta dagsetning á breyttum kjörum átti að verða 1. júlí. Ég beið spenntur eftir að sjá hvað mín kjör myndu batna núna en þegar ég fór yfir greiðsluseðilinn sá ég að hann var nákvæmalega upp á sömu krónutölu og í fyrri mánuði kr: 99.500 og frá þessari tölu er dregin skattur kr. 8.314,- sem gerir kr: 91.186,-. Ég hringdi og spurðist fyrir hjá TR og féll þau svör að það sem breytt hefði verið hingað til ætti ekki við mig.
Ég hélt að ég væri ekkert öðruvísi öryrki en aðrir en einhverra hluta vegna virðast þessar marg umtöluðu kjarabætur ekki eiga við mig. Þess vegna verð ég að álykta sem svo að þessi blaðagrein alþingiskonunnar hafi bara verið bull og staðreyndin sé sú að ekkert sé verið að bæta kjör öryrkja og aldraðra.
Það vantaði ekki loforðin hjá Samfylkingunni fyrir síðustu kosningar um að gera eitthvað róttækt í málefnum þessara hópa. En hver er niðurstaðan bara blaðagreinar í Morgunblaðinu sem ekkert er að marka. Ég verð því að trúa því að ég sé öðruvísi en aðrir öryrkjar og sama hvað Samfylkingin reynir að bæta kjörin geti ég aldrei fallið inn í þann hóp. Kannski þurfi að breyta stjórnarskránni?
Svo kemur hin stóra spurning, hvað á ég að gera við alla þessa peninga?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.7.2008 | 16:45
Stjórnleysi
Það má segja að stjórnleysi ríki hér í efnahagsmálum og ríkisstjórnin ræður ekki við eitt né neitt. Verðbólgan veður áfram og kjarabætur fólks eru löngu farnar út í veður og vind. Fjöldauppsagnir og atvinnuleysi blasir við ef þetta heldur svona áfram.
Þetta er í sjálfu sér ekkert skrýtið því heil kynslóð hefur alist upp í góðæri og þekkir ekkert annað. Þeir sem eru að koma út úr háskólanámi á sviði lögfræði eða viðskiptafræði skilja ekkert hvað er að ske. Stutt er síðan að þetta fólk gat að loknu námi gengið á milli fjármálafyrirtækja og boðið fram sína starfskrafta og milljón á mánuði þótti ekkert sérstök laun. Fólk byggði og byggði sem aldrei fyrr og engum datt í hug að flytja í nýja húsnæðið nema allt væri frágengið og margir fluttu ekki einu sinni húsgögnin með heldur var allt keypt nýtt svo ákveðin stíll væri á heimilinu. Allt var keypt á lánum, þeir sem voru að spara og lögðu fé inn í banka voru taldir ruglaðir, því ef fólk átti til peninga var bankinn versti staðurinn til að geyma þá. Það átti að kaupa hlutabréf til að vera gjaldgengur og vera talinn maður með mönnum.
Bankarnir og stórfyrirtæki voru ekkert skárri, þeir geystust um heiminn og keyptu og keyptu fyrirtæki og auðvitað allt á lánum. Aðrar þjóðir skildu ekkert í þessu efnahagsundri Íslendinga og hvað við vorum orðin rík þjóð. Allt er þetta að breytast og komið að því að greiða fyrir veisluhöldin og hver á að borga? Samkvæmt nýjustu fréttum er það hinn íslenski launamaður sem á að borga.
Nú hafa íslensku bankarnir unnið mál á hendur íslenska ríkinu, sem þeir sendu fyrir eftirlitsdómstól EFTA varðandi Íbúðarlánasjóð sem nýtur ríkisábyrgðar og telst ekki vera heimilt samkvæmt samningum um EFTA. Þarna voru bankarnir seinheppnir því á sama tíma og þetta álit kom var ríkistjórnin búinn að ákveða að láta Íbúðarlánasjóð lána bönkunum þá upphæð sem bankarnir höfðu lánað til íbúðarkaupa til að létta undir með bönkunum. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort bankarnir þiggi lán úr Íbúðarlánasjóði sem þeir eru búnir að fá úrskurðað að sé ekki rekinn á heilbrigðan hátt.
Því undanfarna mánuði hefur verið algert útlánastopp hjá bönkunum og auðvitað getur ekkert fyrirtæki lifað við slíkar aðstæður. Eðlileg bankaviðskipti eru hverju fyrirtæki nauðsynleg til að eðlileg starfsemi geti haldið áfram og ekki á að verða allsherjar hrun í fyrirtækjarekstri með tilheyrandi atvinnuleysi.
1.7.2008 | 16:04
Á virkilega að minnka veiðar við Ísland eitt árið enn?
Nú liggja fyrir tillögur Hafrannsóknarstofnunarinnar um veiðar á næsta fiskveiðiári og er að sjálfsögðu um frekari niðurskurð að ræða og jafnframt boðað að næstu 5 árin verði ekki aukið við veiðar. Samkvæmt venju er nánast um formsatriði að ræða þegar sjávarútvegsráðherra gefur út hvað verði veitt á næsta fiskveiðiári, því alltaf er farið að tillögum Hafró.
Hvað ætla stjórnvöld að halda þessari vitleysu lengi áfram. Það eru að verða 25 ár síðan við tókum upp þetta kvótakerfi og alltaf liggur leiðin niður á við. Á kannski að eyða öðrum 25 árum tilraunastarfsemi með okkar fiskistofna? En ég er hræddur um að við höfum ekki 25 ár í viðbót því löngu áður verða flestir stofnar hér við land útdauðir.
Fylgjast menn ekkert með hvað er að ske í Norðanverðu Atlandshafi með þorskstofninn. Nú er t.d. stóraukin fiskgengd við Austur Grænland og það sem meira er að þar er verið að veiða úr fjölda árganga. Því var haldið fram að fiskleysið við Austur Grænland væri vegna ofveiði en nú hallast vísindamenn að því að viss skilyrði í hafinu hafi verið orsökin en ekki of miklar veiðar.
Í Barentshafi var lengi vel ráðlagður aflakvóti 100 til 200 þúsund tonn af þorski en bæði Norðmenn og Rússar fóru ekkert eftir því og veiddu árlega um 400 þúsund tonn og hvað skeður. Nú ráðleggja fiskifræðingar 500 þúsund tonna þorskkvóta í Barentshafi en taka verður tillit til að í Barentshafi eru loðnuveiðar bannaðar.
Í Eystrasalti var komið að því að banna algerlega þorskveiðar vegna ofveiði og voru það aðallega Pólverjar sem veiddu langt umfram sína aflakvóta. En þá tók þorskstofninn upp á því að fara allt í einu að stækka og stækka og nú er staðan þannig að í stað veiðibanns ráðleggja fiskifræðingar talsverðar veiðar.
Í Ermasundi var þorkstofninn hruninn en nú stækkar hann sem aldrei fyrr í óþökk vísindanna. En reiknilíkan Hafró reiknar bara í eina átt sem er niðurskurður.
Nú ættum við að gefa út jafnstöðuafla til 5 ára með 350 þúsund tonna veiði á þorski og sömu veiði í öðrum tegundum og var fyrir þetta kvótarugl og sjá til hvað skeður en jafnframt banna allar loðnuveiðar sama tíma. Jafnframt stórauka veiðar á öllum hvalategundum burt séð frá því hvort afurðirnar seljast eða ekki. Við höfum engu að tapa því með óbreyttri stefnu verða engar þorskveiðar stundaðar við Ísland eftir 5 ár.
Þeir aðilar sem eru með hvalaskoðanaferðir segja að hrefnuveiðar í Faxaflóa skaði þeirra starfsemi og þeir sem hingað komi til að skoða hrefnur og hvali muni hætta því ef við veiðum hrefnuna því þetta sé fólk sem vilji vernda þessar skepnur. En hvernig getur maður trúað því þegar stórir hópar koma úr hvalaskoðun fara beinustu leið á Sægreifann og borða hrefnukjöt. Heldur þetta fólk að Kjartan á Sægreifanum búi sjálfur til hrefnukjötið?
Bloggfærslur 1. júlí 2008
Færsluflokkar
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Arnfirðingur
- Bíldudalur
- Bolungarvík
- Bæjarins besta á Ísafirði
- Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Edinborg
- Falið vald
- Flateyri
- Frjálslyndi flokkurinn
- Ísafjörður
- Júdit Krista Jakobsdóttir, Bíldudal
- Kristinn Ásgeirsson, Danmörku
- Kristinn H. Gunnarsson
- KVÓTASVINDLIÐ MITT
- Mats Wibe Lund
- Óvinir Ísland
- Skipamyndir Þorgeir Baldursson ljósmyndari
- Suðureyri
- Strandabyggð
- Súðavík
- Tálknafjörður
- Tíðis-fréttavefur
- Vesturbyggð
- VÍSIR.IS
SKIPAMYNDIR
- Fiskistofa Ýmsar upplýsingar
- Gísli Reyisson Aflafréttir
- Hafþór Hreiðarsson Skipamyndir
- Ragnar í Grindavík Skipamyndir
- Skip.is Ýmsar upplýsingar
- Þorgeir Baldursson SKIPAMYNDIR
- http://
Bloggvinir
-
Adda bloggar
-
Ágúst H Bjarnason
-
Albertína Friðbjörg
-
Alma Jenny Guðmundsdóttir
-
Anna
-
Anna Guðný
-
Anna Heiða Stefánsdóttir
-
Anna Pálsdóttir! :)
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Apamaðurinn
-
Arinbjörn Kúld
-
Ásgerður Jóna Flosadóttir
-
Arnlaugur Helgason
-
Arnþór Helgason
-
Ársæll Níelsson
-
Ásdís Rán
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Ásgeir Sveinsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Baldur Smári Einarsson
-
Baldvin Jónsson
-
Bara Steini
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Birna M
-
Bjarney Bjarnadóttir
-
Bjarni Baukur
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Bjarni Kjartansson
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarki Þór Guðmundsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Björgvin S. Ármannsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Björn Leví Gunnarsson
-
Björn Finnbogason
-
Bragi Sigurður Guðmundsson
-
Bragi Sigurðsson
-
Hommalega Kvennagullið
-
Bwahahaha...
-
Davíð Pálsson
-
Davíð S. Sigurðsson
-
Didda
-
Dunni
-
Edda Agnarsdóttir
-
Edda Sveinsdóttir
-
Eggert Þór Aðalsteinsson
-
Egill Jón Kristjánsson
-
egvania
-
Einar B Bragason
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eiríkur Sjóberg
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Emil Örn Kristjánsson
-
J. Einar Valur Bjarnason Maack
-
Elín Margrét Guðmundsdóttir
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
-
FF
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Faktor
-
Fannar frá Rifi
-
Finnur Bárðarson
-
Fjarki
-
Friðrik Höskuldsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Birgisson
-
Gestur Guðjónsson
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Heiðar Valgarðsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Guðjón Ó.
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðmundur Zebitz
-
Guðni Gíslason
-
gudni.is
-
Guðrún Hafdís Bjarnadóttir
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gísli Sigurðsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Haffi
-
Hafrún Kristjánsdóttir
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
-
Halla Rut
-
Halldór Sigurðsson
-
Halldór Örn Egilson
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Davíðsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiður Helgadóttir
-
Helga Dóra
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Himmalingur
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
hilmar jónsson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Hjalti Sigurðarson
-
Hjartagullin mín
-
Hinrik Þór Svavarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Hlekkur
-
Huld S. Ringsted
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
hreinsamviska
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Hilmarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingunn Jóna Gísladóttir
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Guð
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhannes Jónsson
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Halldór Eiríksson
-
Jón Kristófer Arnarson
-
Jón Finnbogason
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Tómasson
-
Karl V. Matthíasson
-
Katrín
-
Kjarri thaiiceland
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristinn Sigurjónsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Lilja Skaftadóttir
-
Lovísa
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Lýður Árnason
-
Maddý
-
Magnús Þór Friðriksson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Marinó Hafnfjörð Þórisson
-
Magnús H Traustason
-
Marinó Már Marinósson
-
Marzellíus Sveinbjörnsson
-
Morgunblaðið
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Natan Kolbeinsson
-
Níels A. Ársælsson.
-
Ólafía Margrét Guðmundsdóttir
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Ólafur Tryggvason
-
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
-
Ólöf de Bont
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Paul Nikolov
-
Páll Höskuldsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
percy B. Stefánsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Ragnhildur Jónsdóttir
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Regína R
-
Ruth
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Samtök Fullveldissinna
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
-
Sigríður Hafdís Þórðardóttir
-
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
-
Sigurður Haukur Gíslason
-
Sigurður Jón Hreinsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Snorri Bergz
-
Sigurjón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Þorsteinn Briem
-
Steinþór Ásgeirsson
-
Svartagall
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sævar Einarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sólveig Aradóttir
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
TARA
-
Tiger
-
Tinna Eik Rakelardóttir
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valbjörn Júlíus Þorláksson
-
Valdimar Leó Friðriksson
-
Valan
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Auðuns
-
Þórbergur Torfason
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórhallur Pálsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Þórir Kjartansson
-
Þórólfur S. Finnsson
-
Þór Jóhannesson
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Jón V. Þorsteinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 802125
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 24.1.2010 Jakob Kristinsson er látinn.
- 21.1.2010 Spakmæli dagsins
- 21.1.2010 Obama
- 21.1.2010 Icesave
- 21.1.2010 Mótmælendur ákærðir
- 21.1.2010 Norwegian
- 21.1.2010 Kaninn og RÚV
- 21.1.2010 Látinn laus
- 21.1.2010 Kína
- 21.1.2010 Hvað vill félagsmálaráðherra?
184 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Er ekki allt í lagi eða hvað?
- "Við erum hér til að taka yfir" Og þá trúi ég þér
- Álitsgafi Vísis út í móa?
- Hótað lífsláti
- Eignaupptaka ríkisins er skær sósíalismi
- Heimsfriður í húfi
- Jóhönnustjórnin 2 mun gera nákvæmlega það sama og Jóhönnustjórnin 1
- Júnískákmótið á fimmtudaginn.
- Markmið Viðreisnar
- 177 Íslendingar hefðu enn verið ofanjarðar í árslok 2024
Af mbl.is
Erlent
- Rutte: Íranar mega ekki eignast kjarnavopn
- Trump enn áhugasamur um diplómatíska lausn
- Sprenging í Malmö miðri
- Alræmt fangelsi meðal skotmarka Ísraela
- Einstakur fornleifafundur í Noregi
- Ekkert lát á árásum: Loftvarnaflautur ómuðu
- Íranir muni ekki gleyma
- Notuðu vopn frá Íran og N-Kóreu: Minnst sjö létust
Fólk
- Arnar Eggert minnist Orra
- Chris Brown neitar sök vegna líkamsárásar í London
- Í sælgætisnærfötum á götum New York-borgar
- Afhjúpar dýpstu langanir og þrár
- Ég vil bara brenna kaffi og selja vínylplötur
- Leita að fólki í áheyrnarprufur
- Fékk svar við flöskuskeyti þrjátíu árum seinna
- Elta ekki nornir, heldur dýrlinga