Mótmæli

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar Tveir karlmenn hlupu út á flugbrautina við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum óskuðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja mennina. Lögregla segir brotið alvarlegt og að refsing geti varðað allt að sex ára fangelsi.

Voru mennirnir ekki bara að mótmæla meðferðinni á flóttamanninum frá Kenía, sem var rekinn úr landi í morgun.


mbl.is Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbjarnarmálið

Ísbjörninn að HrauniLöng grein birtist í franska dagblaðinu Le Monde í dag um ísbjarnamálið hérlendis í júní. Talað er við sérfræðinga á ýmsum sviðum, til dæmis danska yfirdýralækninn sem kom vegna seinni ísbjarnarins, Carsten Grondahl, umhverfisráðuneytið og Þór Jakobsson á Veðurstofu Íslands.

 Þeir ætla að vera lífseigir á síðum blaða víða um heim þessir tveir ísbirnir sem hér birtust öllum að óvörum.  Mér finnst komið nóg af þessu kjaftæði, það er búið að skjóta báða þessa birni og þeir liggja steindauðir einhverstaðar í frystiklefa.  Þannig að ég sé ekkert fréttnæmt við þetta mál lengur og ef fleiri birnir koma á bara að skjóta þá strax, því þetta eru stórhættuleg rándýr, sem hika ekki við að éta einn og einn mann ef þeir eru svangir.


mbl.is Ísbjarnarmálið í Le Monde
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sígaunar

Ítölsk yfirvöld eru byrjuð að taka fingraför af tugþúsundum sígauna sem búa í tjaldbúðum á víð og dreif um landið. Skiptir engu máli hvort um er að ræða fullorðna eða börn. Láta yfirvöldin ásakanir mannréttindasamtaka um kynþáttafordóma sem vind um eyru þjóta. Um 700 tjaldbúðir hafa verið reistar á Ítalíu, flestar í kringum Róm, Mílanó og Napólí.

Hvað hefur þetta aumingja fólk til saka unnið annað en að en að vera sígaunar.  Og hvert á þetta fólk að fara, það á hvergi heima og ekkert föðurland.  Hversvegna var talið sjálfsagt á sínum tíma að reka Palestínumenn úr sínu eigin landi því Gyðingum vantaði land en Sígaunar eru reknir úr einu landinu í annað m.a. frá Íslandi, þótt þeir hefðu komið hingað sem ferðamenn.  Það er eins og þeir séu allstaðar fyrir. 

En hvað hafa þeir gert til að verðskulda svona meðferð.  Ég bara skil þetta ekki því miður.


mbl.is Vilja reka sígauna úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin

Nú hefur Samfylkingin náð því að verð með jafn mikið fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu eða um 30% hvor flokkur.  Hinsvegar styðja núna ekki nema 52% ríkisstjórnina en voru um 80% í byrjun.  Jóhanna Sigurðardóttir er langvinsælasti ráðherrann og þess vegna væri það brjálæði af forustumönnum Samfylkingar að láta sér detta í hug að láta hana hætta sem ráðherra þegar kemur að því að Samfylkingin á að fá stól forseta Alþingis, en það á að ske á miðju kjörtímabilinu samkvæmt stjórnarsáttmálanum.  Flokkurinn hlýtur að eiga góðan þingmann til að setjast í þann stól.  Hvað veldur þessari miklu fylgisaukning Samfylkingar er ekki auðvelt að útskýra en hitt er deginum ljósara að fylgið getur verið fljótt að fara við minnstu misstök.  Þess vegna verða forustumenn flokksins að fara varlega í störfum sínum.  Umhverfisráðherrann er orðin umdeildur og nær væri að setja hana í forsetastól Alþingis frekar en Jóhönnu.  Ef Jóhanna fer úr ríkisstjórninni er fylgið farið í fyrra horf ef ekki neðar.

Ekki sama hver er

Nú eru íslensk stjórnvöld búinn að senda flóttamanninn frá Kenia úr landi og var umsókn hans um dvalarleyfi hafnað og hann sendur til Ítalíu og verður örugglega sendur þaðan heim til sín, þar sem fangelsi bíður hans ef ekki líflát.  Manngreyið hafði ekkert brotið af sér nema það eitt að taka átt í stjórnmálum í sínu heimalandi sem eru auðvitað sjálfsögð mannréttindi. 

Það skrýtna við þetta mál er að hann á eiginkonu hér á landi og nýfæddan son og ekkert tillit er tekið til þess, við að aðskilja þessa fjölskyldu.  Svo erum við íslendingar að taka á móti hátt í 100 flóttamönnum á næstu tveimur árum.  Hvað er það sem gerir þá flóttamenn hæfari til að verða íslenskir ríkisborgarar umfram þennan mann.  Hann á þó talsverð tengsl við landið og hefur unnið með Íslendingum í þróunarstarfi í Afríku og sinnt því vel.

Þessi brottvísun er íslenskum stjórnvöldum til skammar og í ljósi þessa finnst mér ekki koma til greina að taka á móti öðrum flóttamönnum.  Það átti að bjóða þennan mann velkomin til landsins og síðan verður að fara að leysa vandamál þess fólks sem dvelur í flóttamannabúðunum Njarðvík á vegum Rauða-krossins.  Þá fyrst getum við farið að hugsa um að taka á móti öðrum flóttamönnum, fyrr ekki.

Hver ber ábyrgð á þessari andskotans vitleysu?  Er ástæðan ef til vill sú að íslenskum stjórnvöldum er alveg sama um mannréttindi br. kvótakerfið?


Bloggfærslur 3. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband