Mótmæli

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar Tveir karlmenn hlupu út á flugbrautina við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum óskuðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja mennina. Lögregla segir brotið alvarlegt og að refsing geti varðað allt að sex ára fangelsi.

Voru mennirnir ekki bara að mótmæla meðferðinni á flóttamanninum frá Kenía, sem var rekinn úr landi í morgun.


mbl.is Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: 365

Þér finnst sem sagt réttlætanlegt að hlaupa út á flugbrautir til að mótmæla þeim lögum sem eru í gildi um fólk sem þarna á í hlut?

365, 3.7.2008 kl. 17:49

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það ætti að benda þeim á að komst í læri hjá Helga Hóseassyni.

Sjálfur er ég að spá í að komast í slagtog með honum til að mótmæla mannréttindabrotum í sjávarútvegi og því hvernig farið er með litlu sjávarþorpin. Ég er viss um að hann leyfir mér að standa við hlið sér á Langholtsveginum. 

Sigurður Þórðarson, 4.7.2008 kl. 01:22

3 identicon

Það er óskandi að mennirnir verði dæmdir hart fyrir brot sitt.

Johnny Rebel 4.7.2008 kl. 02:35

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það hefur komið framað mennirnir voru að mótmæla meðferðinni á Kenja-manninum, sem var verið að senda úr landi.  Öll málsmeðferð varðandi þennan flóttamann er með ólíkindum og hneyksli að Útlangaeftirlitið skuli hafa komið í veg fyrir að mál þessa manns yrðu flutt fyrir íslenskum dómstólum.  Í ljósi þess hvernig íslensk stjórnvöld komu fram gagnvart þessum manni finnst mér ekkert athugavert við þessi mótmæli.  Þeir settu ekkert í hættu nema sitt eigið líf og smá tafir urðu á flugi.

Jakob Falur Kristinsson, 4.7.2008 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband