Ekki sama hver er

Nú eru íslensk stjórnvöld búinn að senda flóttamanninn frá Kenia úr landi og var umsókn hans um dvalarleyfi hafnað og hann sendur til Ítalíu og verður örugglega sendur þaðan heim til sín, þar sem fangelsi bíður hans ef ekki líflát.  Manngreyið hafði ekkert brotið af sér nema það eitt að taka átt í stjórnmálum í sínu heimalandi sem eru auðvitað sjálfsögð mannréttindi. 

Það skrýtna við þetta mál er að hann á eiginkonu hér á landi og nýfæddan son og ekkert tillit er tekið til þess, við að aðskilja þessa fjölskyldu.  Svo erum við íslendingar að taka á móti hátt í 100 flóttamönnum á næstu tveimur árum.  Hvað er það sem gerir þá flóttamenn hæfari til að verða íslenskir ríkisborgarar umfram þennan mann.  Hann á þó talsverð tengsl við landið og hefur unnið með Íslendingum í þróunarstarfi í Afríku og sinnt því vel.

Þessi brottvísun er íslenskum stjórnvöldum til skammar og í ljósi þessa finnst mér ekki koma til greina að taka á móti öðrum flóttamönnum.  Það átti að bjóða þennan mann velkomin til landsins og síðan verður að fara að leysa vandamál þess fólks sem dvelur í flóttamannabúðunum Njarðvík á vegum Rauða-krossins.  Þá fyrst getum við farið að hugsa um að taka á móti öðrum flóttamönnum, fyrr ekki.

Hver ber ábyrgð á þessari andskotans vitleysu?  Er ástæðan ef til vill sú að íslenskum stjórnvöldum er alveg sama um mannréttindi br. kvótakerfið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband