Fyrsta vígslan hjá samkynhneigðum

Katrín Þóra Víðisdóttir og Erla Björk Pálmadóttir við...Kærustuparið Katrín Þóra Víðisdóttir og Erla Björk Pálmadóttir verður fyrsta parið sem vígt verður í staðfesta samvist í íslenskri kirkju eftir að ný lög sem heimila slíkt tóku gildi 27. júní sl. Athöfnin verður í Melstaðarkirkju í Miðfirði í dag.

Það er ástæða til að óska samkynhneigðum til hamingju  og ekki síst þessu pari, sem hér ríður á vaðið.  Nokkuð vís er að fleiri muni fylgja í kjölfarið.

Við verðum að hætta að líta á samkynjað fólk sem eitthvað 2. flokks fólk en það hefur íslenska kirkjan gert alltof lengi því miður.  Ég hef heyrt marga og þá sérstaklega eldri karlmenn, sem telja að samkynhneigð sé einhver tískubóla.  En staðreyndin er bara sú að fólkið fæðist svona.  Alveg eins og sumir eru fæddir ljótir en aðrir fallegir og sumir eru litlir en aðrir stórir.  Svona er bara lögmál náttúrunnar og því breytir enginn.


mbl.is Fyrsta samkynhneigða parið giftist í kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Var ekki sr. Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju að vígja tvo homma í kirkjunni sinni um daginn ? Það var viðtal í einhverju helgarblaðinu um daginn varðandi það. Annar var einhver prófessor og svo sambýlismaður hans til einhverra ára af erlendu bergi brotinn, Prince að nafni að mig minnir , enda kallaði prófessorinn hann prinsinn sinn.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.7.2008 kl. 11:50

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er ekki að tala um að vígja homma.  Heldur kirkjulega athöfn þar sem samkynhneigð pör eru vígð í staðfesta sambúð og þetta var fyrsta vígslan eftir að ný lög heimiluðu slíkt og tóku gildi 27. júní sl.

Jakob Falur Kristinsson, 3.7.2008 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband