Afsökunarbeiðni

Ég ætla hér með að biðja mína vinnuveitendur afsökunar á því að hafa verið að skrifa um mína vinnu hér á síðunni.  Ég gerði mér ekki grein fyrir að með skrifum mínum væri ég að brjóta trúnað þeirra.  Því allt sem ég geri í vinnunni er trúnaðarmál og átti aldrei að fara inn á mína síðu.  Þetta voru mín mistök sem erfitt er að bæta úr.  Þetta hefur birst og valdið þeim óþægindum, sem mér þykir leitt og vona að ekki verði meira mál úr þessu en orðið er.

Tónlistarhús

Teikning af forsal Tónlistarhússins Kostnaðaráætlun fyrir byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík stenst að sögn Helga S. Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Portus. „Kostnaðarmat við framkvæmdir er í samræmi við upphaflegar áætlanir,“ segir Helgi, en þær hljóðuðu upp á 14 milljarða króna. Fjármagnskostnaður hafi þó hækkað líkt og hjá öllum en það komi ekki til með að breyta áætlunum.

Þarna hefur verið vandað vel til verka við allan undirbúning.  En ég held samt að áætlunin muni ekki standast 100%.  Því það er alltaf við svona miklar byggingar að við lokafrágang kemur eitt og annað upp sem þarf að laga og bætist því sá kostnaður við.


mbl.is Kostnaðaráætlun fyrir tónlistarhúsið stenst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynþokkafull kona

Megan Fox.Fyrirsætan og leikkonan Megan Fox, sem karlatímaritið FHM krýndi á dögunum kynþokkafyllstu konu heims, mun leika nunnuna og friðarverðlaunahafa Nóbels, móður Teresu, í kvikmyndinni How To Lose Friends and Alienate People.

Veit nokkur hvort hún er ógift þessi kona.  Ég er nefnilega að leita mér að konu til að giftast þann 09.09.09.  Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverja konu sem vantar góðanLoLeiginmann.


mbl.is Kynþokkafull móðir Teresa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð

Olíuverð hækkaði í viðskiptum í Asíu í morgun og var verðið um 117 dalir tunnan, hafði hækkað um 1,64 dali. Er hækkunin m.a. rakin til átakanna í Suður-Ossetíu en óttast er að þau kunni að hafa áhrif á framboð af olíu frá Kákasussvæðinu.

Á sama tíma og verið er að segja frá lækkunum á ýmsum vörum, þar á meðal olíu á heimsmarkaði, þá hækkar hún hér á landi.  Alltaf geta olíufélögin fundið ástæðu til að hækka verð.  Nú er hækkunin vegna átaka í Suður-Ossetíu, sem skiptir engu máli við verðlagningu á olíu.


mbl.is Olíuverð hækkar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eric Clapton

Eric Clapton í Egilshöll á föstudag.Margir hafa kvartað yfir miklum hita og loftleysi í Egilshöll á tónleikum gítarhetjunnar Erics Claptons liðið föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fór hitinn upp í 29 gráður í húsinu og þótti mörgum loftræsting alls ekki fullnægjandi.

Hitinn fór sem sagt í 29 stig þarna inni og mun ástæðan hafa verið sú að loftræsting var ekki keyrð á fullu nema af og til vegna hávaða í henni.  Ekki hefði ég viljað vera þarna inni.


mbl.is Kæfandi hiti á Clapton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðlækkanir

Mynd 475109 Verð á hrávörum, líkt og korni, olíu, sykri og hveiti, er farið að lækka nokkuð hratt á heimsmarkaði. Útlit er fyrir að þessar lækkanir skili sér fljótlega inn í matvælaverð og munu Íslendingar þá væntanlega njóta góðs af því. Lækkanirnar eru þó háðar því að íslenska krónan haldist frekar stöðug en hún hefur fallið um 40% síðan um áramótin.

Þetta hélt ég að gæti ekki skeð á Íslandi og hef því fyrirvara á að þær muni skila sér til neytandans.


mbl.is Verðlækkanir í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli

Mynd 475120 Félagsmenn í Félagi ábyrga feðra komu í gærkvöldi saman við Héraðsdóm Norðurlands eystra og letruðu á stétt fyrir utan húsið skilaboð til stjórnvalda. Er um að ræða lið í mótmælum, sem félagið ætlar að standa fyrir næstu fjórar vikur við því að barnalagafrumvarp var ekki afgreitt úr allsherjarnefnd Alþingis fyrir þinglok í vor.

Með þessum mönnum stend ég enda meðlimur í þessu félagi.


mbl.is Skrifuðu á stétt héraðsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saving Iceland

Félagar í Saving Iceland hlekkjuðu sig m.a. við hlið í Straumsvík.Samtökin Saving Iceland segjast hafa tekið niður búðir sínar á Hellisheiði en þar hefur hópur frá samtökunum dvalið undanfarnar þrjár vikur og skipulagt aðgerðir.

Farið hefur fé betra, ekki mun ég sakna þeirra og öllu þeirra rugli og vitleysu.  Þeir geta fara til andskotans mín vegna.


mbl.is Saving Iceland tekur niður búðir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun

 Laun forstjóra Landspítala hækka, samkvæmt ákvörðun kjararáðs, þegar nýr forstjóri tekur við starfi 1. september. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að mánaðarlaunin verði 1.618.56 krónur. Laun forstjóra hafa verið um 1,3 milljónir króna og er hækkunin því um 25%.

Er þetta ekki sami spítalinn og hefur verið í miklum fjárhagserfiðleikum.  Er þetta kannski einn liðurinn í að bæta fjárhaginn.  Síðan eru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, unglæknar og fleiri sem vinna hjá þessum spítala á skammarlega lágum launum og margir við það að gefast upp.  Þessi hækkun er bara ávísun á meiri vandræði hjá starfsfólki spítalans.  Framkvæmdastjórinn er nú komin með fimmföld laun hjúkrunarfræðings.  25% launahækkun þegar allir aðrir eiga að gæta hófs í launakröfum.  Er þetta lausn á erfiðleikum Landsspítalans?


mbl.is Laun forstjóra Landspítala hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert

Nú veit ég ekkert hvað ég á að skrifa um.  Það er svo sem allt í lagi, því þegar maður skrifar um ekkert, er enginn sem hefur ástæðu til að móðgast.  Enginn verður sár og allir bara nokkuð ánægðir.  Mér finnst lífið vera dásamlegt nú og hef ekki undan neinu að kvarta.  Svona eiga hlutirnir að vera alla dag og allar nætur.  Nú fer ég bráðum að sofa og vona að mig dreymi aftur um sömu konuna og mig er alltaf að dreyma um.  Því segi ég bara góða nótt kæru bloggvinir.

Næsta síða »

Bloggfærslur 11. ágúst 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband