Minnist móður sinnar

Vilhjálmur BretaprinsVilhjálmur Bretaprins hefur greint frá þeirri tómleikatilfinningu sem hann finni enn fyrir vegna láts móður sinnar Díönu prinsessu fyrir tólf árum. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Þetta var hörmulegur atburður og á sínum tíma var reynt að kenna blaðaljósmyndurum um þetta hörmulega slys.  En seinna kom í ljós að ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis.  Það er víst sama hverjum þetta slys var að kenna, það var jafn hörmulegt.


mbl.is Vilhjálmur minnist móður sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíkniefni

Dómstóll í Eskilstuna í Svíþjóð hefur dæmt 44 ára gamlan hársnyrti í 10 ára fangelsi fyrir að hafa selt hundruðum ungmenna efnið tramadol sem flokkast undir fíkniefni.

Þetta er undarlegur dómur þar sem þetta efn var ekki flokkað sem fíkniefni fyrr en í desember 2007.  Manngreyið gæti þess vegna verið búin að kaupa efnið fyrir þann tíma og þá var það löglegt.


mbl.is Keyptu fíkniefni af hársnyrti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingrof

Jóhanna Sigurðardóttir.Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra las upp forsetabréf um þingrof 25. apríl og kosningar í upphafi þingfundar í morgun. Enn liggur þó ekkert fyrir um hvenær þingfundum verður frestað þar sem samkomulag hefur ekki náðst milli stjórnar og stjórnarandstöðu.

Nú skil ég ekki alveg hvernig er hægt að tilkynna þingrof sama dag og á að kjósa.  Ég hélt að ekki væri hægt að rjúfa þing fram í tímann.  En kannski er þetta mögulegt og löglegt.  En það hlýtur að trufla mikið störf þingsins, þegar þingmenn eru á fullu í prófkjörum og undirbúningi kosninga.  Hefði ekki verið eðlilegra að seinka kjördegi um mánuð.


mbl.is Las upp forsetabréf um þingrof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stólar keisarans

 Áratugum saman hefur venjuleg finnsk fjölskylda setið í sófasetti síðustu rússnesku keisarafjölskyldunnar án þess að vita af því. Húsgögnin voru keypt af bolsjevikum á þriðja áratug síðustu aldar.

Hún er heppinn þessi fjölskylda að eiga þessi verðmætu húsgögn.  Svo eru uppboðshaldarar að vona að einhver auðmaður kaupi þessi húsgögn.  Af hverju þar allt sem er dýrmætt að lenda í höndum auðmanna??  Má þessi finnska fjölskylda ekki eiga sín húsgögn í friði fyrir auðmönnum??


mbl.is Sátu á stólum keisarans í tugi ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til liðs við Frjálslynda flokkinn

Karl V. Matthíasson Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. Segir í tilkynningu frá Karli að ákvörðun þessi helgist af því að skoðanir hans og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum.

Þetta er eitt dæmið enn þar sem menn ná ekki þeim árangri í prófkjöri sem þeir vonast eftir.  Það er orðið óþolandi þetta eilífa flokkaflakka hjá þingmönnum. 

Hvað varðar prófkjörin, forval, netkosningu eða póstkosningu, þá á fólk ekki að taka þátt í slíku ef það er ekki tilbúið að sætta sig við niðurstöðurnar.


mbl.is Karl V. til liðs við Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnús Þór

Magnús Þór HafsteinssonMagnús Þór Hafsteinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum, á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkishólmi 13. og 14. mars. Magnús Þór, sem er núvaraformaður Frjálslynda flokksins varð í 4. sæti í póstkosningu hjá Frjálslynda flokknum í NV-kjördæmi nýverið.

Nú lýst mér ekki á það hjá þessum flokki.  Magnús er auðvitað svekktur að hafa einungis náð 4. sætinu í póstkosningu flokksins í Norðvesturkjördæmi, en hann stefndi á 2. sætið það sæti fékk hinsvegar Sigurjón Þórðarson og 3. sætið Ragnheiður Ólafsdóttir.  Það verða örugglega mikil læti á landsfundi flokksins í Stykkishólmi í dag og á morgun.  Auk Magnúsar, hefur Guðjón Arnar Kristjánsson, sitjandi formaður óskað eftir endurkjöri.  Einnig er í kjöri til formanns Guðni Halldórsson. 

Nú held ég að endanlega verði gengið frá flokknum og er alvarlega að hugsa um að segja mig úr honum og ganga í Samfylkinguna.  Það er eins og ekkert geti gengið upp hjá Frjálslynda flokknum.  Eilíf átök og deilur milli manna.  Ég efast um að þessi flokkur fá mann kjörin á Alþingi í kosningunum.


mbl.is Magnús Þór stefnir á formanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðurinn

Í þættinum Markaðnum með Birni Inga á Stöð 2 í gærkvöld var Björn Ingi að ræða við athafnarmanninn Jón Ólafsson og þar kom margt áhugavert fram.  Jón útskýrði hvernig salan á Senu hefði gengið fyrir sig, en hún átti að vera mjög gegnsæ og heiðarleg.  Jón ásamt bandarískum manni, sem er mjög þekktur í afþreyingariðnaði, áttu hæsta tilboð í Senu um 800 milljónir.  En þeir félagar drógu tilboð sitt til baka þegar þeir komust að því að búið var að ákveða fyrirfram hver ætti að kaupa en það var félag í eigu tveggja fyrrum stjórnenda Glitnis.  Sá munur var á tilboðunum að Jón og félagi hans ætluðu að yfirtaka hluta skuldanna sem greiðslu.  Hitt tilboðið var staðgreiðslutilboð upp á 500 milljónir.  Fljótt á litið lítur það tilboð betur út sem bauð staðgreiðslu en hitt sem ætlaði að taka yfir hluta skuldanna.  En þegar nánar er skoðað þá er staðgreiðsluboðið svona;  Kaupverð kr. 500 milljónir - afsláttur vegna staðgreiðslu kr: 50 milljónir, niðurfærsla á lager kr: 150 milljónir.  Þannig að á endanum var greitt kr: 300 milljónir fyrir Senu og afskrifa þurfti stóran hluta skuldanna.  Hefði nú ekki verið skynsamlegra að taka tilboði Jóns og félaga og leyfa þeim að yfirtaka hluta skuldanna og greiða mismuninn í peningum.  Þá hefði viðkomandi banki fengið 800 milljónir fyrir Senu.  Eða 500 milljónum meira en fékkst í raun.  Ef þetta er forsmekkurinn af því hvernig staðið verður að sölu fyrirtækja sem bankarnir kunna að eignast, þá verður þetta ein allsherjar útsala með tilheyrandi afskriftum.

Krónan

 Gengi krónunnar veiktist umtalsvert í viðskiptum dagsins í dag, en gengisvísitalan hækkaði um 2,39% og veiktist krónan sem því nemur.

Hvað er verið að hanga með handónýtan gjaldmiðil ef hann þolir ekki að ríkið greiði vexti af sínum lánum, án þess að falla.


mbl.is Vaxtagreiðslur þrýsta niður krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný ríkisstjórn

Flestir vilja áframhaldandi stjórn Samfylkingar og VG. Flestir þeirra, sem tóku þátt í skoðanakönnun sem Fréttablaðið birtir í dag, eða 54,2%, vilja að Samfylking og Vinstrihreyfingin-grænt framboð myndi ríkisstjórn eftir kosningar. 12,6% vilja stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.

Það liggur alveg ljóst fyrir að Samfylkingin og VG munu mynda næstu ríkisstjórn.  Þessir tveir flokkar munu fá hreinan meirihluta á Alþingi í kosningunum í vor.  Sjálfstæðisflokkurinn mun þurfa að sætta sig við að vera mjög lengi í stjórnarandstöðu.  Það er að segja ef flokkurinn verður til í núverandi mynd eftir landsfund flokksins, en þar er mjög líklegt að hann klofni.


mbl.is Flestir vilja stjórn S og V
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt blóð á vígvöllinn

Þetta er kjörorð tveggja frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.  Hvað eru þessi menn að hugsa.  Þeir eru að líkja lýðræðislegum kosningum í lýðræðisríki, sem vígvelli.  Það verður þokkalegur andskoti ef þessir menn ná sæti á framboðslista og fara í Alþingiskosningarnar.  Þeir munu þá að sjálfsögðu verða vel vopnum búnir til að geta höggvið mann og annan, blóðugir upp fyrir haus.  Á hvaða tíma lifa þessir menn.  Flestir landsmenn vita að við lifum á 21. öld en ekki á Sturlungaöld.

Mér finnst nú ansi lagst lágt til að vekja á sér athygli í prófkjöri.  En vitleysingarnir leynast víða og þeir verða alltaf til.  En hvort svona hugsandi menn eigi erindi á Alþingi dreg ég í efa.


Bloggfærslur 13. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband