Markaðurinn

Í þættinum Markaðnum með Birni Inga á Stöð 2 í gærkvöld var Björn Ingi að ræða við athafnarmanninn Jón Ólafsson og þar kom margt áhugavert fram.  Jón útskýrði hvernig salan á Senu hefði gengið fyrir sig, en hún átti að vera mjög gegnsæ og heiðarleg.  Jón ásamt bandarískum manni, sem er mjög þekktur í afþreyingariðnaði, áttu hæsta tilboð í Senu um 800 milljónir.  En þeir félagar drógu tilboð sitt til baka þegar þeir komust að því að búið var að ákveða fyrirfram hver ætti að kaupa en það var félag í eigu tveggja fyrrum stjórnenda Glitnis.  Sá munur var á tilboðunum að Jón og félagi hans ætluðu að yfirtaka hluta skuldanna sem greiðslu.  Hitt tilboðið var staðgreiðslutilboð upp á 500 milljónir.  Fljótt á litið lítur það tilboð betur út sem bauð staðgreiðslu en hitt sem ætlaði að taka yfir hluta skuldanna.  En þegar nánar er skoðað þá er staðgreiðsluboðið svona;  Kaupverð kr. 500 milljónir - afsláttur vegna staðgreiðslu kr: 50 milljónir, niðurfærsla á lager kr: 150 milljónir.  Þannig að á endanum var greitt kr: 300 milljónir fyrir Senu og afskrifa þurfti stóran hluta skuldanna.  Hefði nú ekki verið skynsamlegra að taka tilboði Jóns og félaga og leyfa þeim að yfirtaka hluta skuldanna og greiða mismuninn í peningum.  Þá hefði viðkomandi banki fengið 800 milljónir fyrir Senu.  Eða 500 milljónum meira en fékkst í raun.  Ef þetta er forsmekkurinn af því hvernig staðið verður að sölu fyrirtækja sem bankarnir kunna að eignast, þá verður þetta ein allsherjar útsala með tilheyrandi afskriftum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband