Spakmæli dagsins

"Leit að hamingju" er ótrúlega heimskuleg setning.

Ef þú leitar hamingjunnar,

Finnur þú hana aldrei

(C.P. Snoe)


Nýtt Titanic

Titanic sökk í jómfrúarferð sinni árið 1912.Finnski kaupsýslumaðurinn Toivo Sukari hyggst byggja eftirlíkingu af breska farþegaskipinu Titanic í fullri stærð á þurru landi til að laða ferðamenn að verslunarmiðstöð sem hann ætar að reisa í þorpi í norðanverðu Finnlandi.

Það er ekki kreppa hjá þessum Finna, því smíði á svona skipi er mjög dýr og ennþá dýrari ef um á að ræða nákvæma eftirlíkingu af hinu upprunalega skipi.  Þetta á að vera til að laða að ferðamenn í nýja verslunarmiðstöð.  En hann rekur húsgagnakeðju undir nafninu Masku og ætlar að byggja nýja verslunarmiðstöð í bænum Tampere, sem er í suður hluta Finnlands.  Þar á þetta risastóra skip að standa á þurru landi.


mbl.is Hyggst smíða nýtt Titanic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn

Verðbólga lækkar nú um 0,59% milli mánaða sem samsvarar 7,1% verðhjöðnun á ársgrunni. Stýrivextir er nú 17%, en peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um eitt prósentustig í síðustu viku.

Ekki var hún stór þessi vaxtalækkun og mun litlu breyta fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu.  En hvað þetta kemur þorskveiðum við skil ég ekki. 

Hvaða samband er á milli þorskveiði og vaxta?


mbl.is 4 ára þorskveiði til að mæta útflæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn

Mynd 493670 Samfylkingin mælist með mest fylgi í skoðanakönnun, sem Fréttablaðið birtir í dag. Er fylgi flokksins 31,7% í könnuninni en mældist 33% í könnun blaðsins fyrir hálfum mánuði. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist nú 29,1% en var 26,9% í síðustu könnun blaðsins. Fylgi VG mælist nú 25,8% en var 21,7% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknaflokks minnkar hins vegar umtalsvert, mælist 7,5% nú en var 12,3% í könnuninni fyrir hálfum mánuði.

Samfylkingin er orðin stærsti flokkur landsins og VG er að ná svipuðu fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn.  Þetta tap Framsóknar kemur ekki á óvart því í síðustu könnun hafði nýlega tekið við nýr formaður en þótt Sigmundur Davíð sé öflugur þarf meiri tíma til að ná upp fylgi flokksins, sem var að mestu hrunið eftir afsögn Guðna Ágústssonar.  Einnig er það vitað að talsvert hefur verið um að sjálfstæðismenn kysu Framsókn til að halda flokknum inn á Alþingi.  Það var gert til þess að Sjálfstæðisflokkurinn gæti alltaf notað Framsókn sem hækju ef á þyrfti að halda.  Nú kjósa þessir menn ekki lengur Framsókn þar sem flokkurinn styður núverandi ríkisstjórn.


mbl.is Fylgi Framsóknarflokks minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB

Skipta þarf krónunni út fyrir evruna og eru tvær leiðir til þess; einhliða upptaka eða aðild að ESB. Þetta er niðurstaða þess hóps er fjallaði um peningamál í skýrslu Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins, sem kemur út í dag.

Þessari skýrslu verður dreift við setningu landsfundarins í dag og eiga örugglega eftir að verða miklar deilur um hana.

Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki viljað útiloka að sótt yrði um aðild að ESB, en það eru þau; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Illugi Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson.  Það verður spennandi að sjá hvað frá þessum landsfundi kemur.


mbl.is Evran komi í stað krónunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra er að glíma við mjög erfitt verkefni sem er niðurskurður í heilbrigðiskerfinu.  Hann hefur farið þar alveg nýjar leiðir, sem eru að fólk lækki í launum og vinnuframlag eykst.  Þá þarf ekki að loka á eins mörgum stöðum og áður var ráðgert og fólkið heldur sinni vinnu.  Launin lækka mest hjá þeim sem eru með hæstu launin en laun allt að 300 þúsund á mánuði lækka ekki.

Sjálfur gengur Ögmundur á undan með góðu fordæmi, því hann hætti á launaskrá hjá BSRB þegar hann fór á Alþingi.  Einnig afsalaði hann sér ráðherralaunum og fær núna aðeins greitt sem venjulegur þingmaður.

Það má vel vera að mörgum þyki 300 þúsund í mánaðarlaun ekki vera mikið.  En við öryrkjarnir höfum mátt búa við það árum saman að hafa einungis lámarksframfærslu sem er í dag um 150 þúsund á mánuði.  Þess er vandlega gætt að við förum ekki yfir þessi mörk og þetta eru tekjur fyrir skatta.


Eignaskattur

Taka á aftur upp sanngjarna eignaskatta. Þetta er ein ályktananna sem samþykktar voru á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, VG, um síðustu helgi.

Ég er ánægður með þessa ályktun og vonandi verður hún framkvæmd sem fyrst.  Þessi skattur var nú lengi til staðar á Íslandi og ekki stór hluti af venjulegu launafólki þurfti að greiða hann.  En í dag þegar auðmenn Íslands eiga orðið nokkra milljarða þá er rökrétt að skattleggja þá.


mbl.is Vinstri græn vilja eignaskatta á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræði

Ekki sér fyrir endann á meðferð allsherjarnefndar á frumvarpi um persónukjör í þingkosningum. Ljóst er að það kemst ekki lengra í meðförum þingsins fyrir kosningar.

Þetta var orðið ljóst þegar Sjálfstæðisflokkurinn lagðist algerlega á móti frumvarpinu.  Ég hef ekki heyrt nein skýr svör frá Sjálfstæðismönnum af hverju þeir eru á móti þessu frumvarpi.  Er flokkurinn orðinn hræddur við að of mikið lýðræði verði í landinu.

Nú hefst þeirra landsfundur og þar verður mikill slagur á milli Bjarna Benediktssonar og Kristjáns Þórs Júlíussonar.  Bjarni nýtur stuðnings forustu flokksins en nokkuð jöfn skipti eru á landsfundarfulltrúum milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins.  En á landsbyggðinni nýtur Kristján meira fylgis en Bjarni, einnig hefur fréttts að kosningarvél Guðlaugs Þórs muni standa með Kristjáni Þór.  Guðlaugur Þór er þarna að hefna fyrir prófkjörið í Reykjavík þar sem hann beið lægri hlut fyrir Illuga Gunnarssyni en Illugi og Bjarni eru miklir vinir.

Þetta verður spennandi kosning á sunnudaginn.


mbl.is Lýðræðismálin verða eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fóstureyðingar

Landspítali 877 fóstureyðingar hjá konum með lögheimili á Íslandi voru skráðar á árinu 2007 og er það nokkuð minna en árið á undan en svipað og árin 2004 og 2005. Fóstureyðingum hefur heldur farið fækkandi undanfarinn áratug.

Það býða nokkrir tugir foreldra eftir því a fá að ættleiða barn og meðan svo er.  Má þá ekki bara hætta alveg fóstueiðingum hér á landi.  Þessir foreldrar á biðlistanum myndu sjálfsagt frekar íslenskt barn.  Það sparar líka mikinn gjaldeyrir, því mér skilst að það kosti orðið 2,8 milljónir að ættleiða barn erlendis frá.  Svo er líka önnur hlið á málinu, sem er hvort íslensk kona getur ekki hugsað sér að láta ættleiða barnið, sem hún getur ekki alið upp.  Þetta er mikið tilfinningamál.


mbl.is Fóstureyðingum fer fækkandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband