Lýðræði

Ekki sér fyrir endann á meðferð allsherjarnefndar á frumvarpi um persónukjör í þingkosningum. Ljóst er að það kemst ekki lengra í meðförum þingsins fyrir kosningar.

Þetta var orðið ljóst þegar Sjálfstæðisflokkurinn lagðist algerlega á móti frumvarpinu.  Ég hef ekki heyrt nein skýr svör frá Sjálfstæðismönnum af hverju þeir eru á móti þessu frumvarpi.  Er flokkurinn orðinn hræddur við að of mikið lýðræði verði í landinu.

Nú hefst þeirra landsfundur og þar verður mikill slagur á milli Bjarna Benediktssonar og Kristjáns Þórs Júlíussonar.  Bjarni nýtur stuðnings forustu flokksins en nokkuð jöfn skipti eru á landsfundarfulltrúum milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins.  En á landsbyggðinni nýtur Kristján meira fylgis en Bjarni, einnig hefur fréttts að kosningarvél Guðlaugs Þórs muni standa með Kristjáni Þór.  Guðlaugur Þór er þarna að hefna fyrir prófkjörið í Reykjavík þar sem hann beið lægri hlut fyrir Illuga Gunnarssyni en Illugi og Bjarni eru miklir vinir.

Þetta verður spennandi kosning á sunnudaginn.


mbl.is Lýðræðismálin verða eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband