Hjálparstarf

Starf íslensku hjálparsveitarinnar á Haíti heldur áfram að vekja athygli erlendra fjölmiðla. Sagt var frá starfi þeirra í aðalfréttatíma rússneska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi, í fyrstu frétt, en um 300 milljónir manna horfa á þessa stöð að jafnaði.

Auðvitað vekur það heimsathygli, að lítil þjóð, sem á í miklum erfiðleikum sjálf, skuli virkilega getað unnið mikil og góð verk á Haítí.  Hjá Íslenska Rauða-krossinum var aldrei neitt hik á því, sem gera þyrfti og mun íslenska björgunarsveitin, hafa verið með þeim fyrstu á staðinn og unni þar eins og hetjur. ALDREI var verið að velt því fyrir sér hvað þetta muni kosta, Íslendingar eru þannig gerðir að þeir vita af einhverjum í nauð þá er komið til bjargar.


mbl.is Íslendingar vekja áhuga Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sá sem fær tækifæri til að hjálpa öðrum er heppinn.

Húnbogi Valsson 16.1.2010 kl. 11:37

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt.

Jakob Falur Kristinsson, 16.1.2010 kl. 11:57

3 Smámynd: Ibba Sig.

Rauði krossinn hefur ekkert með íslensku sveitina að gera. Allar björgunarsveitir Íslands starfa undir hatti Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Ibba Sig., 16.1.2010 kl. 13:57

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg rétt að björgunarsveitirnar starfa undir hatti Landsbjargar, en þessi rústabjörgunarsveit fór til Haítí á vegum Rauða krossins.

Jakob Falur Kristinsson, 17.1.2010 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband