Einelti

Einelti er orð sem ætti helst aldrei að þurfa að nota.  En nú bregður svo við að ung stúlka, sem tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins, laugardaginn 6. janúar, hefur verið lögð í einelti.  Það skiptir engu máli hvor söngur hennar var fullkominn eða ekki.  Stúlkan, sem er aðeins 16 ára gömul gerði sitt besta og meira er ekki hægt að krefjast af einni manneskju.  Þarna var verið að keppa um lag en ekki flytjendur og þeir, sem voru óánægðir með þetta lag ættu frekar að beina spjótum sínum að höfundum lagsins, frekar en að leggja söngvarann í einelti.

Ég hef alltaf haldið að einelti væri bundið við börn, sem í sakleysi sínu vissu ekki hvað þau voru að gera.  En einelti í garð þessarar ungu söngkonu er fyrst og fremst bundið við fullorðið fólk og gætu haft þau áhrif að þessi 16 ára söngkona syngi ekki meir.  Þetta einelti hefur verið hér á netinu og þá undir dulnefni, því allir vita að þeir eru að gera rangt með sínum skrifum.  Eins hefur þjóðþekktur maður, Einar Bárðarson, notað útvarpstöð sína Kanann til árása á þessa ungu stúlku og aðrir apa á eftir.  Því mjög margir halda að Einar Bárðarson viti allt best og segi aðeins það sem er rétt. En Einar er ekki alvitur frekar en aðrir.  Nú ætti Einar Bárðarson að biðja þessa ungu söngkonu afsökunar á sínum orðum.  Ef hann gerir það ekki er hann meiri aumingi en ég hefði haldið.

Burt með allt einelti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband