Fíkniefni

 

Já var það ekki, er nú orðið nauðsynlegt að gefa út skriflegar leiðbeiningar um hvaða fíkniefni passar við hvert tilefni.

Þetta kemur til viðbótar verðskrá sem lögreglan gefur reglulega út, því í hvert skipt sem lögreglan nær að taka fólk með fíkniefni er þess vandlega gætt að í fréttatilkynningum sem hún sendir um hvert mál að taka skýrt fram hvað verðið sé á viðkomandi efni þegar það er selt á götunni svo þess sé nú vandlega gætt að viðskiptavinir fíkniefnasala láti ekki okra á sér.  Mjög virt verðlagseftirlit hjá löggunni.  Fínar forvarnir eða hvað?

 


mbl.is Fíkniefnaleiðarvísir birtur í fríblaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Blessaður Jakob !

Dett ég ekki bara um þig hérna í bloggheimi gömul nágrannakona frá Bíldudal, Gunna systir hennar Hellgu Jóh sem er gisft honum Heiðari Baldurs, þú manst kannski ekkert eftir mér.

Gaman að rekast á þig hérna.

Kveðja  Gunna Jóh 

Guðrún Jóhannesdóttir, 16.9.2007 kl. 18:10

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Blessaður Jakob !

Dett ég ekki bara um þig hérna í bloggheimi

gömul nágrannakona frá Bíldudal, Gunna systir hennar Hellgu Jóh sem er

gisft honum Heiðari Baldurs, þú manst kannski ekkert eftir mér.

Gaman að rekast á þig hérna.

Kveðja  Gunna Jóh 

Guðrún Jóhannesdóttir, 16.9.2007 kl. 18:11

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú auðvitað man ég eftir þér Gunna, hér er ég að skrifa flesta daga.

Jakob Falur Kristinsson, 16.9.2007 kl. 18:29

4 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

"Fínar forvarnir eða hvað ?"

Ég og þú Jakob erum vonandi ekki á leiðinni á kaf í kókið þótt svo að verðið sé eitthvað að droppa, eða hvað ?

Ætli prísinn á LSD-i  sé kominn það langt niður, að það sé farið að borga sig að taka það, eða veit maður áfram að efnið er hættulegt, og lætur það eiga sig..... alveg sama hver prísinn er á því ?

Ingólfur Þór Guðmundsson, 19.9.2007 kl. 13:38

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei verðið á þessum óþverra skiptir mig engu, ég hef aldrei komið nálægt þessu og ætla ekki að fara að byrja á því núna.

Jakob Falur Kristinsson, 19.9.2007 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband