Það munaði ekki um það

Íbúðin hennar Mariah Carey í New York er svo stór að söngkonan hefur ekki tölu á baðherberjunum í henni.  Íbúðin er rúmlega ellefu hundrað fermetrar að stærð og er í Tribecahverfinu eftirsótta.  En Carey var alls ekki viss um helstu kosti íbúðarinnar er hún var spurð.  En eitt var á hreinu og það er að eitt af herbergjunum í íbúðinni er tileinkað japanska teiknimyndakettinum "Hello Kitty", sem Carey segist hafa haldið uppá síðan hún var lítil.  Þetta kemur fram í viðtali við Carey í tímaritinu Glamour.

það er mér mikil ánægja að hafa komist yfir þessar upplýsingar og fá að vita að Carey veit þó eitthvað um þessa íbúð sína.

Það var í Spaugstofunni á laugardaginn viðtal við nýríkan íslending sem sagðist eiga fjögur þúsund fermetra íbúð með heilum bílakjallara undir,tvö þúsund fermetra sumarhús, hálfan Laugarveginn, fjögur hundruð milljóna króna snekkju, 30 sérsmíðaða jeppa sem kostuðu 40 milljónir stykkið og ég veit ekki hvað og hvað.  Þannig að þessi íbúð hjá Carey með sitt japanska kattarherbergi er nú bara eins og lítil geymsla hjá okkar nýríka fólki eftir því sem Spaugstofan skýrði frá og ég tek mun meira mark á en einhverju tímariti, þótt það heiti Glamour.


mbl.is Hefur ekki tölu á baðherbergjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband