Öll dýrin í skóginum eru orðnir vinir

Þá er lokið þriggja klukkustunda löngum fundi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy í Ráðhúsinu í Reykjavík.  Fram kom í máli fundarmanna að fundinum loknum að ákveðinn trúnaðarbrestur hefði orðið vegna málsins.  Þeir sögðu þó aldrei hafa komið annað til greina en að leysa hann og það hafi tekist.  Nú eru því allir orðnir vinir og borgarstjórinn aftur orðinn "gamli góði Villi." 

Ég held að þetta verði lengi í minnum haft að heill borgarstjórnarflokkur hafi verið rasskeldur eins mikið opinberlega og barinn til hlýðni og virðist hafa skeð í dag.  Nú er bara eftir að fá fréttir af því hvernig Björn Ingi Hrafnsson hefur tekst að kjafta sig út úr málinu á fundi sínum með forustu Framsóknarflokks sem einnig átti að vera í dag.

Niðurstaða:  Sópa öllum óþverranum undir teppið og málið er dautt.


mbl.is Sátt meðal sjálfstæðismanna þrátt fyrir trúnaðarbrest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er alveg ótrúlegur andskoti.  Og alltaf synda menn ofan á skítahaugnum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2007 kl. 13:35

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þeir kunna ekki annað, Ásthildur.

Jakob Falur Kristinsson, 9.10.2007 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband