Tilraunir

Hafrannsóknastofnun og HB-Grandi vinna nú að rannsóknaverkefni í veiðitækni sem miðar að því að aðskilja fiskitegundir áður en afli er kominn um borð í veiðiskip. Felst tilraunin í því að aðskilja þorsk og ýsu í botnvörpu þannig að tegundirnar hafni í sitt hvorum vörpupokanum. Fjallað er um verkefnið á vef Hafrannsóknarstofnunar og segir þar m.a. að við þær aðstæður sem nú séu á Íslandsmiðum eigi sjómenn ekki hægt um vik með að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra um samsetningu afla.

Þetta sé sérlega erfitt þegar sótt sé í tvo eða fleiri stofna sem haldi sig á sömu svæðum, en hlutfall veiðiheimilda í tegundirnar sé ekki í samræmi við dreifingu þeirra á miðunum, líkt og nú er með þorsk- og ýsustofnana á Íslandsmiðum.

Þá segir að HB-Grandi hafi boðið stofnuninni Örfirisey RE 4 til rannsóknirnar sem fram fari dagana 12. – 20. október. Er rannsóknin framkvæmd þannig að þil úr neti er sett í endilanga vörpuna þannig að fiskur sem heldur sig ofarlega í vörpunni safnast í annan hluta poka en sá sem heldur sig í neðri hluta vörpunnar.

Ein vitleysan í viðbót í þessu kvótakerfi og af hverju þarf endilega að gera þessa tilraun í Ísafjarðardjúpi.  Væri ekki eðlilegra að gera þetta á hefðbundinn veiðislóð togara, því varla getur verið ætlunin að togaraflotinn fari að stunda veiðar inn á fjörðum og flóum í framtíðinni.  Það verður aldrei marktæk tilraun með ákveðið veiðarfæri ef tilraunin er ekki framkvæmd á þeim stað sem nota á viðkomandi veiðarfæri.  Allt annað er bull og vitleysa.


mbl.is Hafró og HB-Grandi reyna að aðskilja fiskitegundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband