Norðmenn

Ný skoðanakönnun í Noregi leiðir í ljós að rétt rúmlega helmingur landsmanna, eða 51,6%, segist trúa á Guð. Ríflega 40 af hundraði segjast trúa því að Kristur hafi dáið á krossinum fyrir syndir mannanna, samkvæmt könnuninni, sem gerð var fyrir norska dagblaðið Klassekampen.

Er virkilega svona komið fyrir frændum okkar norðmönnum að nær helmingur þjóðarinnar eru heiðingjar.  Þá er ekkert skrýtið að hinn norskættaði Geir H. Haarde, forsætisráðherra skuli ætla að fara á fund páfans í Róm, með biblíuna í hendinni.


mbl.is Annar hver Norðmaður trúir á Guð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hvaða biblíu ætli Geir fari með? Þá gömlu, eða nýju?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.10.2007 kl. 21:24

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Trúa ekki flestir Íslendingar á álfa?

Sigurður Þórðarson, 25.10.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Geir fer örugglega með nýju biblíuna Guðmundur, biskupinn er búinn að árita hana á Latínu fyrir páfann.  Ekki veit ég hvort íslendingar trúi mjög mikið á álfa ef vel er skoðað, a.m.k. geri ég það ekki.  Ekki get ég í fljótu bragði séð samhengi í því að vera vel upplýstur og vera heiðingi, hvar er samsvörun þar á milli Sigurður?

Jakob Falur Kristinsson, 26.10.2007 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband