Borgarráð Reykjavíkur

BorgarráðBorgarráð hélt 5.000 fund sinn í gær og í tilefni tímamótanna fór hann fram í Höfða. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir að hefðbundnar umræður hafi farið fram á fundinum sjálfum og í móttökunni á eftir hafi ýmsar skemmtilegar tengingar komið í ljós. Í því sambandi nefnir hann að Hermann Jónasson, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi setið fyrsta fund bæjarráðs 6. ágúst 1932 og barnabarn hans, Guðmundur Steingrímsson, hafi verið á fundinum í gær sem aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra.

Ganga virkilega þessar stöður í erfðir og hvað finnst Birni Inga svona skemmtilegt við það?  Það er kannski það eina sem hefur verið skemmtilegt á þessum 5.000 fundum borgarráðs og allir hinir 4.999 fundirnir verið hundleiðinlegir. 


mbl.is Óvæntar tengingar komu í ljós á hátíðarfundi borgarráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér er tjáð að Björn spillti Ingi sé ótrúlegur leiðindaskarfur og þess vegna vorkenni ég öllum sem þurfa að funda með honum eða að umgangast hann almennt í lífinu. Lífið er of stutt til að fólk þurfi að þola slíkar þjáningar.

Stefán 26.10.2007 kl. 10:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ekki get ég dæmt um það, ég þekki manninn ekkert og hef engan áhuga á að kynnast honum.

Jakob Falur Kristinsson, 26.10.2007 kl. 10:16

3 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Hvað verður nú um málverkið af Bjarna Benediktssyni?

Magnús Þór Hafsteinsson, 26.10.2007 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband