Aðalfundur LÍÚ

Nú stendur yfir aðalfundur LÍÚ og er þar fjölmennt að vanda og allt gengur eins og vel smurð vél.  Stjórnin leggur fram þær tillögur sem samþykkja skal og samkvæmt venju lyfta allir upp hendi og samþykkja.  Aldrei fara fram neinar raunverulegar umræður um þessar tillögur og aldrei er gengið skriflega til atkvæðagreiðslu.  Ég hef oft furðað mig á því hvað margir einyrkjar í útgerð sækja þessa fundi og taka þátt í að samþykkja tillögur sem jafnvel fela í sér að þeirra eigin útgerð er dauðadæmd.  Svona er nú lýðræðið á þessum fundum LÍÚ, allt er samþykkt og enginn hefur kjark til að vera á móti.  Enginn þorir að leggja fram neinar sjálfstæðar tillögur, bara að samþykkja allt sem forustan vill á hverjum tíma.  Ég held að það mætti hreinlega sleppa þessu leikriti sem aðalfundur LÍÚ er og láta bara stjórnina um að túlka skoðun þessara samtaka og bjóða heldur félagsmönnum á fyllirí á einhverjum góðum stað, því stór hluti fundarmanna er ekki að mæta á þessa fundi til að taka þar þátt í einhverjum störfum fundarins eða hafa áhrif á stefnu LÍÚ á hinum ýmsu málum.  Nei það er fyllirísveislan sem er í lokinn sem fær svona marga til að mæta og sjávarútvegsráðuneytið borgar kostnaðinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæll Jakob, já ég er alveg sammála þér um já fólkið, ég er nú ekki mikið inn í því hvernig þetta er hjá L.Í.Ú. enn þetta er sama sagan í öllum félögum, allir samþykkja og þeir sem ekki mæta á fundi eru svo ævavitlausir yfir þessari samningsleysu sem gerð var.
Því í hansa koti, fer ekki fólk af stað og segir sína meiningu???

ÉG bjó í Sandgerði í 27ár fluttist í burtu 94. til Reykjavíkur
síðan á Ísafirði í 10ár núna er ég lent á Húsavík.
Flottar myndir hjá þér.
                           Góðar stundir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.10.2007 kl. 11:15

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég þekki þetta mjög vel hjá LÍÚ því ég sat á sínum tíma marga aðalfundi LÍÚ.

Jakob Falur Kristinsson, 26.10.2007 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband