REI og GGE

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tvær tillögur stýrihóps, sem myndaður var til að fjalla um samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy. Tillögurnar eru annars vegar um að hafna samruna félaganna og hafna 20 ára einkaréttarsamningi REI við Orkuveitu Reykjavíkur. Hins vegar um að Orkuveita Reykjavíkur gangist undir ýtarlega stjórnlagaúttekt.

Þessi samþykkt breytir engu því eins og ég var nýbúinn að skrifa í grein áðan, hefur borgarlögmaður svarað umboðsmanni Alþingis því til að hvorki borgarráði né borgarstjórn kom neitt við málefni Orkuveitu Reykjavíkur og er því sama hvað núverandi meirihluti er að samþykkja er þetta mál þeim algerlega óviðkomandi.  Borgarráð gæti alveg eins verið að samþykkja einhverjar breytingar á einkafyrirtæki út í bæ, það hefði sömu áhrif þau eru einfaldlega ekki aðilar að málefnum OR.


mbl.is Borgarráð samþykkir að hafna samruna REI og Geysis Green
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Nei, munurinn er sá að borgarráð felur stjórn OR að framkvæma þessa ályktun.  Stjórn OR situr sem fulltrúar flokkanna í borgarráði og verður að bregðast við eða segja af sér.  Sem ég vona að hún geri og sýni þessari vitleysu fulla hörku.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 1.11.2007 kl. 11:46

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

En borgarlögmaður segir í svari sínu til Umboðsmanns Alþingis, að hvorki borgarráð né borgarstjórn komi þetta ekkert við, svo hvað sem borgarráð gerir er það algerlega merkingarlaust.

Jakob Falur Kristinsson, 1.11.2007 kl. 16:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband