Nýtt hjá Reykjavíkurborg

 

Það hefur vakið athygli mína að hinn nýi meirihluti í Reykjavík gerir lítið í að skipa nefndir til að fjalla um hin ýmsu mál.  Alltaf þegar hinn nýi borgarstjóri Dagur B. Eggertsson er spurður um einhver verkefni sem þurfi að leysa er svarið alltaf það sama, "Málið verður skoðað vandlega og það verður skipaður stýrihópur til að fjalla um málið og því ekki tímabært að tjá sig um málið að svo stöddu".  Ekki veit ég hver er munur á nefnd og stýrihóp, mér finnst einhvernvegin að stýrihópur hljóti að vera hópur fólks sem á að stýra einhverju verkefni en ekki gera tillögur það væri hlutverk vinnunefnda.  Þetta orð stýrihópur mætti alveg eins nota um borgarstjórn sem á að stýra borginni og væri þá talað um að kjósa stýrihóp Reykjavíkur en ekki borgarstjórn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband