Athyglisverð hugmynd

Með því að beina umferðarþunganum út úr Reykjavík og láta umferðina fara milli eyjanna úti á sundunum í rörum úr áli og plasti, plægðum ofan í hafsbotninn, myndu lífsgæði tugþúsunda Reykvíkinga batna verulega, að mati Hrafns Gunnlaugssonar kvikmyndaleikstjóra.

Þetta er athyglisverð hugmynd hjá Hrafni sem ætti að skoða betur af borgaryfirvöldum.  Hrafn hefur áður komið skemmtilega á óvart með hugmyndir í skipulagsmálum í Reykjavík.  En því miður hefur borgaryfirvöldum ekki borið sú gæfa að láta kanna þær nægjanlega vel.  Öllum góðum hugmyndum á að taka fagnandi þótt þær komi ekki frá einhverjum sérfræðingum.  Glöggt auga hins óbreytta íbúa er oft betra en hugmyndir sem fæðast í einhverju kerfi.


mbl.is Umferðin í rör milli eyjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband