Ný þula hjá RÚV

„Ég er svolítið stressuð vegna þess að ég er smá feimin að eðlisfari,"segir hin nýráðna þula Sigurlaug Jónsdóttir um nýja starfið. Sigurlaug starfar einnig sem flugfreyja og kveðst aldrei ætla að hætta því. „Þulustarfið er svona með," segir hún. „Flugfreyjustarfið er draumastarfið, ég verð þula á milli ferða."

Er ekki kominn tími til hjá RÚV að leggja niður þetta starf og hafa þetta eins og á Stöð 2 þar sem dagskrárliðir eru kynntir án aðstoðar sérstaklegra þula sem birtast á milli atriða og ekki er erfiðaðra að fylgjast með dagskránni þar.  Eða er þetta svona starf sem verður að vera til svo hægt sé að ráða ættingja, vini eða kunningja? 


mbl.is Flugfreyja flýgur í þulustarfið á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna kom tilvalið tækifæri til þess að losna við þetta fornaldarfyrirbæri, þulurnar, sem hafa fylgt ríkissjónvarpinu frá upphafi.  En hvað er gert, þegar tvær (tvö) hætta eru ráðnar fjórar, er þetta að fara vel með afnotagjöldin?  Er ekki nóg að við borgum lúxusbíl undir Pál Magnússon (og væntanlega reksturinn líka) heldur er verið að ráða í störf sem eru með öllu ónauðsynleg.

Jóhann Elíasson, 9.11.2007 kl. 11:15

2 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Sammála ykkur báðum.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 9.11.2007 kl. 13:09

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég held að dagskráinn hvorki batnaði né versnaði þótt þulurnar hættu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband