Áburðarframleiðendur

Þrír framleiðendur áburðar hafa nú birt á vefsíðum sínum niðurstöður niðurstöður rannsókna á áburðarsýnum og tekið fram að þeir eigi ekki þátt í stjórnsýslukæru vegna þeirrar ákvörðunar Landbúnaðarstofnunar frá því í mars á þessu ári að birta niðurstöður efnagreinga á tilbúnum áburði.

Hvað var svona dularfullt við niðurstöður Landbúnaðarstofnunar að ekki þolir dagsins ljós.  Eða er verið að halda verndarhendi yfir einhverjum framleiðanda eða innflytjanda? Hvað olli því að Landbúnaðarráðuneytið bannaði birtingu þessara upplýsinga?  Þarna er greinilega eitthvað skrýtið á ferðinni.


mbl.is Áburðarframleiðendur birta niðurstöður sem Landbúnaðarstofnun er meinað að birta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst þetta gott framtak hjá þeim. Þeir eru samt trúlega að gera þetta í eigin hag, enda losna þeir við einhverja samkeppni ef að aðrir hætta vegna þessa.

Bjarni Ben 9.11.2007 kl. 11:31

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var ekki að gagnrýna þá aðila sem hafa birt sínar niðurstöður.

Jakob Falur Kristinsson, 9.11.2007 kl. 12:00

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er dálítið spúkí svo ekki sé meira sagt.  Gott hjá þeim sem birtu niðurstöðurnar.  Þetta mætti alveg kanna betur. Það er alltaf verið að passa upp á einhverja samtrygging þeirra sem ráða og eiga peningana er orðin alveg óþolandi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2007 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband