Kaupþing

Lausafjárstaða Kaupþings er prýðileg, að sögn Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns bankans, en skuldatryggingarálag bankans hefur áttfaldast frá því í sumarbyrjun.

Ef staða Kaupþings er jafn góð og örugg og Sigurður Einarsson segir og skuldatryggingarálag bankans er á misskilningi byggt.  Hvers vegna telur bankinn nauðsynlegt að níðast á sínum viðskiptavinum með 50% hækkun á vöxtum af íbúðarlánum bankans.  Þetta passar ekki alveg saman, fljótt á litið.


mbl.is Vangaveltur um fjármögnun rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

það er góð mynd eftir Halldór í blaðinu í dag um hið rétta andlit bankanna!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 9.11.2007 kl. 12:26

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er þetta gamla:MIKILL VILL MEIRA!  Og það sem Anna Benkovic skrifaði hér áður því er ég alveg hjartanlega sammála.

Jóhann Elíasson, 9.11.2007 kl. 15:30

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það var mikið rétt sem "heilög Jóhanna" sagði, þarna sýndu þeir sitt rétta andlit. Það var eins fallegt að það tókst að hrinda áhlaupinu frá bönkunum á íbúðalánasjóð, það væri laglegt ef þeim hefði verið afhent alræði í þessu með því að láta þá hafa sjóðinn. Ég verð nú að viðurkenna, að ég hélt á tímabili að honum væri ofaukið og bankarnir mundu geta sinnt þessu, en þar skjátlaðist mér hrapalega.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.11.2007 kl. 16:03

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Rétt hjá þér Anna myndin segir allt sem segja þarf.

Jakob Falur Kristinsson, 9.11.2007 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband