Nýtt skip

Nýtt skipÚtgerðarfyrirtækið Skinney Þinganes á Hornafirði hefur fest kaup á uppsjávarveiðiskipinu Lunar Bow PD265, sem var í eigu Lunar Fishing í Skotlandi. Skipið er smíðað í Noregi árið 2000 og er útbúið á tog og nótaveiðar. Burðargeta þess er um 1540 tonn í kælitönkum en skipið er rúmlega 61 meter að lengd og um 13 metra breitt og aðalvél skipsins um 7400 hö. Áætlaður afhendingartími er í maí 2008

Það er alltaf gleðiefni þegar ný skip eru keypt til landsins og gott til þess að vita að enn eru til fyrirtæki í sjávarútvegi þar sem bjartsýni ræður ríkjum en ekki eintómt væl og vonleysi.  Því til viðbótar þessu skipi eru tvö ný skip í smíðum erlendis fyrir þetta sama fyrirtæki.

Til hamingju Skinney Þinganes með nýja skipið.


mbl.is Skinney Þinganes kaupir nýtt skip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband