Vina-brask

Nú er að koma í ljós að sjálfstæðismenn hafa heldur betur matað krókinn með kaupum á eignum á Keflavíkurflugvelli.  Meira að segja bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ, sem kjörnir eru til að gæta hag sinna íbúa, nýta tækifærið og kaupa eignir á þessu svæði og eru þar bæði í hlutverki kaupenda og seljanda.  Og til að bæta gráu ofan á svart á svo að fá Ríkisendurskoðun til að endurskoða sín eigin verk og blessa þetta allt saman.  Því miður eru þeir alþingismenn sem gagnrýna þetta sem mest ekki með íbúa Reykjanesbæjar í huga aðeins upphlaup til að vekja athygli á sjálfum sér.  Þeir meina ekki eitt einasta orð í sinni gagnrýni og enginn tekur lengur mark á VG, sem hafa hæst, því allir eru fyrir löngu orðnir hundleiðir á þeirra málflutningi því þeir eru alltaf á móti öllu sem gert er.  Árni fjármálaráðherra má þó eiga það að hann hugsar um sína ættingja og sitt fólk. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband